strandveiðar.
Frú forseti. Aftur þakka ég hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Þetta er áskorun, ég ætla ekkert að draga úr því, en þetta er ekki höfuðverkur. Þetta er ekki áskorun af þeirri stærðargráðu, mögulega vegna þess að ég deili ekki alveg sýn hv. þingmanns á það hversu mikil viðbótin þarf að vera og legg þar til grundvallar meðaltalsveiði undanfarinna ára og því miður frekar svartsýna sýn Hafrannsóknastofnunar á þorskgengd. En ég held kannski að við getum verið sammála um það að fari svo að hér verði mokveitt af þorski á strandveiðum sé það áskorun en jafnframt töluvert gleðiefni, er það ekki, vegna þess að það sýnir kannski að spár Hafró hafa verið fullvarkárar og það væri nú óskandi. En nei, það er þunnt svarið, segir hv. þingmaður. Ég fór yfir það að við erum að bíða eftir að fá endanlega tölu og mér líður betur með að hafa hana fasta í hendi á meðan við förum síðan að útfæra nánar þær leiðir sem við höfum til staðar þannig að það liggur nú bara fyrir. En það þarf að fara í einhverjar breytingar.