156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

aðhaldsaðgerðir og forsendur hagvaxtar í fjármálaáætlun.

[15:27]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Ég vil gjarnan beina fyrirspurn til hæstv. fjármálaráðherra sem einnig vill svo til að er varaformaður Viðreisnar utan þings. Til upprifjunar er það einmitt flokkurinn sem breytti um lit í kosningabaráttunni í vetur sem leið og varð allt í einu mjög borgaralegur og að sögn hægri sinnaður en hefur svo reynst vera mesti vinstri flokkurinn í nýja stjórnarsamstarfinu og dettur ekkert í hug annað en að hækka skatta og álögur á öllum sviðum, þvert á gefin loforð, og kallar það bara einhverjum öðrum nöfnum og þá er það í lagi. En raunveruleikinn felur í sér að þetta eru skattahækkanir og skattahækkanir skulu það því heita.

En aftur að hæstv. skattamála — fyrirgefðu, frú forseti, fjármálaráðherra. Fjármálaráð, sem hefur það lögbundna hlutverk að veita sjálfstætt mat á stefnumörkun í opinberum fjármálum, gagnrýnir í nýrri álitsgerð fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2026–2030. Ráðið bendir á að tímasetning og framkvæmd stefnunnar grafi undan því hlutverki sem henni er ætlað samkvæmt lögum. Sérstaklega er varað við því að stefna stjórnvalda byggi á afar bjartsýnum forsendum um hagvöxt og skýrari stefnu þurfi um hvernig eigi að ná sjálfbærni í opinberum fjármálum. Í álitsgerð ráðsins segir að mikil óvissa ríki um þróun efnahagsmála á næstu árum og það dragi mjög úr trúverðugleika skuldalækkunaráforma að þau séu að mestu afturhlaðin eða áformuð síðar á tímabilinu. Þetta eru sem sé, eins og við höfum oft bent á, alltaf einhver fyrirheit og áætlanir langt, langt inn í framtíðina, eitthvað sem jafnvel á að gerast á næsta kjörtímabili en ekki hjá núverandi ríkisstjórn.

Spyrja má: Hvers konar metnaðarleysi er þetta hjá hæstv. ríkisstjórn og hæstv. fjármálaráðherra þegar ekki hefur einu sinni tekist að sannfæra fjármálaráð ríkisstjórnarinnar um að þessi plön muni ganga upp?