aðhaldsaðgerðir og forsendur hagvaxtar í fjármálaáætlun.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir hans spurningu en velti fyrir mér hvort það geti verið að hann sé að ræða um fjármálaáætlun síðustu ríkisstjórnar vegna þess að ég kannast alls ekki við að aðhaldsaðgerðir á næsta kjörtímabili séu í þessari áætlun, heldur þvert á móti er reiknað með því að ná jafnvægi í rekstri ríkissjóðs 2027 og hins opinbera alls 2028 sem er vandlega inni á þessu tímabili. Varðandi þær forsendur sem lagðar eru til grundvallar við gerð áætlunarinnar þá eru þær vandlega niðurnjörvaðar, eru hagspár Hagstofu Íslands um það hvernig hagvöxtur muni þróast á komandi misserum. Þær eru þess vegna alls ekki háðar neins konar mati heldur einfaldlega það sem spálíkön Hagstofu Íslands komast að og eru nú raunar mjög samhljóða spám annarra greiningaraðila, svo sem Seðlabanka Íslands. Þannig að ég veit heldur ekki alveg nákvæmlega hver gagnrýnin er þar. Hitt er annað mál að taka verður undir það sjónarmið hv. þingmanns að óvissa um þróun hagstærða hefur auðvitað vaxið verulega á þessu ári. Það er hins vegar þannig að þegar slík óvissa vex er í sjálfu sér ekkert annað að gera en að reyna að búa ríkissjóð undir að takast á við ófyrirséð áföll og það er best gert með því að honum sé skilað með afgangi.