aðhaldsaðgerðir og forsendur hagvaxtar í fjármálaáætlun.
Frú forseti. Hæstv. fjármálaráðherra verður auðvitað að reyna að leitast eftir að svara þeirri spurningu sem var lögð fram en ekki fara bara í að útskýra eigið mat á því sem fram kom í ræðu þess sem hér stendur. Nú vill svo til, af því að hæstv. ráðherra vék að því, að auðvitað að hafa hagstærðir breyst. En útgjöld eru nú ekki góður mælikvarði á árangur í rekstri hins opinbera. Sem dæmi má nefna útgjöld til skólasamfélagsins hér á landi þar sem ekki fer saman eitthvert dýrasta kerfi í heimi og mælanlegur árangur ef nýttir eru þeir mælikvarðar sem þau lönd sem við helst berum okkur saman við eru að nýta. Þar fáum við lítið fyrir peninginn. Því þykir mér eðlilegt að spyrja þessara spurninga og mér þykir hæstv. ráðherra gera lítið úr þeirri gagnrýni sem fjármálaráð er að setja hér fram. Í álitsgerðinni segir að fjármálastefnan eigi að liggja fyrir áður en fjármálaáætlun er kynnt þar sem stefnan setji meginstefnu og ramma sem áætlunin eigi að útfæra. Fjármálaráð telur að núverandi fyrirkomulag brjóti gegn þeirri röð og sé óheppilegt í ljósi lagaákvæða.
Ég spyr því hæstv. fjármálaráðherra: Hyggst hann bregðast við þessari gagnrýni eða eru fyrri svör hér til marks um það sem við eigum von á, að hæstv. ráðherra hyggist jafnvel hunsa gagnrýnina og þá væntanlega ganga áfram götuna með vonina eina í farteskinu?