aðhaldsaðgerðir og forsendur hagvaxtar í fjármálaáætlun.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir hans síðari spurningu og get haft svarið ákaflega stutt og laggott. Já, það er markmið mitt að taka tillit til þeirrar gagnrýni fjármálaráðs að fjármálastefna komi fram fyrr. Nú var það auðvitað þannig að kosningar voru hér haldnar á óvanalegum tíma með stuttum fyrirvara. Tíminn sem vannst til að undirbúa þessi tvö grundvallarplögg var mun styttri en vanalegt er. Þess vegna vill svo óheppilega til að fjármálastefna kom einungis stuttlega á undan fjármálaáætlun. Ég tek undir þau sjónarmið fjármálaráðs að miklu heppilegra er að fjármálastefna sé afgreidd áður en fjármálaáætlunin kemur til umræðu og ég stefni svo sannarlega að því að gera það.