aðbúnaður og velferð svína.
Frú forseti. Mig langar bara til að nota tækifærið til að vekja athygli á þessu máli og ég vona að við höfum öll ýtt á grænt og greitt því atkvæði að fá þessa úttekt og þessa skýrslu. Eins og við öll vitum hefur síðustu misseri verið allnokkur umræða um aðbúnað og velferð svína og sláandi upplýsingar birst í fjölmiðlum um aðbúnað og meðferð svína í ræktunarbúum sem virðast ekki samræmast ákvæðum laga um velferð dýra, nr. 55/2013. Við flutningsmenn þessarar beiðni, sem er Flokkur fólksins og nokkrir þingmenn Samfylkingar, teljum nauðsynlegt að varpa ljósi á og upplýsa hvernig búið er að svínum og fá það bara skýrt í vonandi góðri og ítarlegri skýrslu sem ég óska og vona að komi fyrir þinglok þó að kannski standi tæpt því að tíminn er naumur. En hér er um gríðarlega mikilvægt málefni að ræða og ekkert okkar vill hugsa til þess að aðbúnaður þessara dýra, frekar en annarra dýra, sé slæmur.