156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[15:59]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hvaða pólitísku skilaboð er verið að senda með því að sveitarfélag þurfi að fullnýta útsvarið áður en það fær greitt úr jöfnunarsjóði? Það eru engin sérstök pólitísk skilaboð falin í því. Þetta er byggt á sanngirnissjónarmiðum. Ef við horfum til hlutverks sjóðsins þá er það félagslegt millifærslukerfi sveitarfélaga. Til hvers? Til þess að þau geti sinnt lögbundnum skyldum sínum sem sveitarfélög. Þeim eru markaðir ákveðnir tekjustofnar í lögum og eins og ég kom inn á þá eru þessir tekjumöguleikar ein af grundvallarforsendum í líkaninu og það er horft til þessara tekjumöguleika og á móti er horft til útgjaldaþarfarinnar. Það verður að vera þannig og það er sanngirnissjónarmið að þessir tekjumöguleikar séu fullnýttir. Segjum að útgjaldaþörf sveitarfélags sé 1.200 en tekjumöguleikarnir eru 1.000. Það vantar 200 upp á. Þá ætti sjóðurinn með réttu að koma inn með 200 svo að útgjaldaþörfinni verði mætt. (Forseti hringir.) En þá getur sveitarfélagið ekki á sama tíma sagt: Nei, við ætlum bara að vera í 800, við ætlum að spara okkur pening og láta jöfnunarsjóðinn greiða. (Forseti hringir.) Það myndi líka leiða til þess að önnur sveitarfélög fengju minna. Þetta er sanngirnissjónarmið og algerlega í samræmi við tilgang og hlutverk sjóðsins.

(Forseti (ÞSv): Forseti vekur athygli á því að þegar fjórir hafa beðið um andsvar þá er tíminn ein mínúta í hvert sinn.)