Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ein mínúta er allt of lítið í þetta stóra mál. En jú, hér er um pólitísk skilaboð að ræða. Hér er þessi ríkisstjórn enn og aftur að leggja til skattahækkanir og hér bara skattahækkanir á venjulegar fjölskyldur hérna á svæðinu. Eins og segir í greinargerðinni:
„Ef sveitarfélag ákveður að hafa álagningarhlutfallið lægra en 14,97% kann aftur á móti að koma til þess að framlög til sveitarfélagsins lækki á grundvelli þessarar reglu.“
Með öðrum orðum, hæstv. ráðherra. Þetta er hvati, það er verið að hvetja sveitarfélög til að taka eins mikið og mögulega hægt er af sjálfsaflafé íbúa sinna. Það er verið að hvetja sveitarfélögin til að fullnýta alla skattstofna algjörlega í botn því að annars verður þeim refsað. Hér er ekki verið að tala um útgjaldaregluna, ég átta mig á því að þetta er jöfnunarsjóður. Við eigum að jafna útgjaldaþörfina og það má líka horfa til tekjuþarfarinnar. En hér er um stór pólitísk skilaboð að ræða og ég spyr þá bara aftur: Eru þetta ekki aftur skilaboð ríkisstjórnarinnar um hækkun skatta? Það er bara skýrt. Hér á að hækka skatta á almenning í landinu og gott að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra heyri þessa umræðu líka.