Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Hér er ekki verið að hvetja til neinnar skattahækkunar, langt í frá. Það sem er verið að gera hér er að sjá til þess að sveitarfélög í landinu geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu út frá útgjaldaþörf. Ef sveitarfélagið nýtir ekki tekjumöguleika sína og fær síðan úr sjóðnum eins og í núverandi kerfi, hvað felst í því? Jú, það felst í því að hin sveitarfélög í landinu eru að niðurgreiða skattalækkun sveitarfélagsins. Ég veit (Gripið fram í.) að það eru tvö sveitarfélög í kjördæmi hv. þingmanns sem eru mjög áfram um það að sýna fram á það að þau séu með lágt útsvar, sem eru meira að segja rekin með tapi, voru það a.m.k. í hittiðfyrra, og eru núna að fara fram á það að þau fái peninga úr jöfnunarsjóði svo þau geti litið vel út gagnvart kjósendum sínum og sýnt að þau eru með lágt útsvar. Það er ekki þannig sem þetta virkar í heiminum. Sveitarfélög verða að geta verið sjálfbær út frá tekjustofnum sínum og útgjaldaþörf. Sveitarfélag á að fullnýta tekjustofna sína áður en það fer að fá úr jöfnunarsjóði (Gripið fram í.) vegna þess að jöfnunarsjóður á að hjálpa sveitarfélögunum að sinna lögbundnu hlutverki sínu í samfélaginu. Út á það gengur málið. Hv. þingmaður þarf að horfa til þess að þessi (Forseti hringir.) tvö sveitarfélög verða einfaldlega að fullnýta tekjustofna sína áður en þeir fara í sjóðinn. Það er sanngirnismál og algerlega í samræmi við tilgang sjóðsins.