156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[16:04]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Trúir hæstv. innviðaráðherra því að það verði eitthvert sveitarfélag sem muni ekki fullnýta útsvarið sitt verði þetta niðurstaðan? Verður ekki niðurstaðan sú að það verða hvergi lægri álögur á íbúa sveitarfélaga í þessu landi í gegnum útsvar? Er það ekki alveg augljós niðurstaða af þessu? Veit hæstv. ráðherra um eitthvert sveitarfélag sem er að vinna fyrir sína þegna sem myndi ekki fullnýta útsvarið sitt og lækka þá bara álögur á fasteignaeigendur í staðinn t.d., fasteignagjöldin, lækka bara, taka tekjurnar? Ég vil líka spyrja hæstv. innviðaráðherra að því hvort hann átti sig ekki á því að með því að klára það frumvarp sem hann leggur hér fram þá fær sveitarfélagið rétt til útgjalda óháð því hvort það fullnýtir útsvarið sitt eða ekki, miðað við að það fullnýti tekjustofnana sína? Hvort það fullnýtir þá í raun eða ekki skiptir ekki máli miðað við þá reikniformúlu sem þú ert sjálfur að leggja til hérna.

(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á að vísa til ráðherra með réttum formerkjum.)