156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[16:05]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Skilji ég andsvar hv. þingmanns rétt þá er það af sama meiði og hjá fyrri þingmanni sem kom hér í ræðustól áðan. Ég get ekki séð annað en að þetta sé sanngirnismál. Ég veit að það eru þrjú, fjögur sveitarfélög, reyndar ekki í kjördæmi hv. þingmanns heldur í Suðvesturkjördæmi, sérstaklega tvö sveitarfélög þar sem þetta er mikið hitamál. Það er auðvitað mjög mikilvægt hlutverk sjóðsins að styðja við sveitarfélög sem þurfa á peningunum að halda, að þeir peningar renni til þeirra sveitarfélaga sem virkilega þurfa á því að halda til að geta sinnt sínu lögbundna hlutverki. Það er einfaldlega horft á þessa tekjumöguleika og hluti af þeim tekjumöguleikum er þessi, að fullnýta útsvarið. Það er það sem er gert. Ef útgjaldaþörfin er meiri út frá þeim reiknireglum og aðferðafræði sem er í frumvarpinu, m.a. á bls. 10 í greinargerðinni er farið yfir prósentuhlutföllin sem skipta þar máli, þá þarf jöfnunarsjóður að koma inn í og bæta sveitarfélögum það upp svo þau geti sinnt þessu hlutverki. En það að sveitarfélögin segi: Nei, við ætlum ekki að nýta allt útsvar okkar, en fái samt úr sjóðnum gengur gegn markmiðum jöfnunarsjóðs og tilgangi og þetta er líka mikið sanngirnismál vegna þess að það skerðir útgjöld til annarra úr sjóðnum. (Forseti hringir.) Þau sveitarfélög sem leyfa sér það að vera með lægra útsvar en lög heimila og fá svo úr sjóðnum — þá minnkar til hinna sveitarfélaganna, þau eru að niðurgreiða skattalækkun hjá sveitarfélögunum.