156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[16:07]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hef verulegar áhyggjur af því að hæstv. innviðaráðherra skilji ekki sitt eigið mál sem hann leggur hér fram. Hann er að leggja fram reikniformúlu sem reiknar út hvað sveitarfélög eiga rétt á miklu framlagi úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga miðað við að þau fullnýti tekjumöguleika sína. Það er í frumvarpinu sem er verið að leggja hér fram. Svo er það bara undir sveitarfélögunum komið hvort þau ætli að fullnýta það eða ekki. Það er bara allt annað mál. En hér erum við bara með formúlu til að finna út, út frá íbúasamsetningu, aldurssamsetningu, fjölda barna á vissum aldri og annað slíkt, hvað sveitarfélögin eigi rétt á úr þessum jöfnunarsjóði og þau borga líka inn í þennan sjóð miðað við þetta. Þau gera það. Og það er miðað við að þau séu að fullnýta útsvarið. Af hverju mega þau þá ekki ráða því hvort þau lækki álögurnar gegnum útsvarið, í gegnum fasteignagjöldin eða með niðurgreiðslu á einhverju öðru? Af hverju ætlar hæstv. ríkisstjórn að fara að skipta sér af því?