156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[16:08]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Varðandi útgjaldabreyturnar þá vísa ég til töflu á bls. 10 sem er í viðauka, 2. gr. Þar koma fram vogirnar sem eru þar í gangi, t.d. hlutfall íbúa með fimm ára og yngri, þar er vogin 18%, hlutfall íbúa 6–15 ára, það er 13%, hlutfall eldri borgara 67–80 ára, þar er 4% o.s.frv., það er fjöldi byggðakjarna í sveitarfélagi, fækkun íbúa, snjómokstur, sérstakar samgönguhindranir, stærðarhagkvæmni grunnskóla og lágt fasteignamat. Þetta eru þær vogir sem er litið til varðandi útgjaldabreytur. Þetta er grundvallaratriði. Þetta er félagslegt jöfnunarkerfi sveitarfélaga og stuðlar að því að þau geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu. Það verður að teljast mjög óeðlilegt að sveitarfélög sem ekki hafa þörf fyrir að fullnýta skattstofna sína sæki síðan fé í sameiginlegan sjóð sveitarfélaganna. Það er bara mjög óeðlilegt. Þau fullnýta ekki sína skattstofna og fara svo í sameiginlegan sjóð sveitarfélaga og segja: Nei, heyrðu, við ætlum að fá peninga hjá ykkur, öllum hinum sveitarfélögunum á landinu, af því að við erum með svo lága skatta. Það er ósanngjarnt. (Forseti hringir.) Við getum tekið þessa umræðu áfram, gerum það alveg endilega. Þetta er ósanngjarnt.

(Forseti (BHar): Forseti minnir hæstv. ráðherra og hv. þingmenn á að það er eingöngu ein mínúta til umráða í þessum lið núna.)