156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[16:10]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mig langar að blanda mér aðeins í þessa umræðu. Ég held að það hafi gætt ákveðins misskilnings hjá hæstv. ráðherra í síðasta andsvari varðandi hlutdeild jöfnunarsjóðs og útsvarsgreiðslur sem er allt ákveðið í reglugerð, óháð því hver álagningarprósentan er. En mig langar að fá það aðeins skýrar fram frá hæstv. ráðherra varðandi það sem hér kemur fram því að mínu mati og okkar sem hér hafa talað nú þegar er verið að vega mjög kröftuglega að sjálfsákvörðunarrétti sveitarfélaga og hreinlega verið að refsa þeim sveitarfélögum sem vilja lækka álögur, í þessu tilviki útsvar á sína íbúa, telji þau sig hafa færi til. Mig langar að fá það aðeins skýrar fram frá hæstv. ráðherra af því að mig grunar að þau sveitarfélög sem þá neyðast til að fara að hækka útsvarið til þess að lenda ekki þarna á milli muni leita annarra leiða eins og hér hefur komið fram, t.d. að lækka fasteignaskatta. (Forseti hringir.) Hvað finnst hæstv. ráðherra um það, að hækkun skatta á launafólk muni leiða til lækkunar skatta á eignafólk í staðinn?