156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[16:11]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Varðandi sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga þá er hann innan þess lagaramma sem þeim er settur í lögum frá Alþingi Íslendinga. Það er nú þannig sem þetta er. Hvað finnst mér um það að sveitarfélög fari að auka aðra skattheimtu? Sveitarfélögin sjálf hafa ákveðið rými, ákveðinn sjálfsákvörðunarrétt innan þess ramma sem lögin setja þeim, það er alveg kristaltært, og ef þau vilja hækka fasteignaskattinn þá geta þau gert það að vissu leyti, upp að ákveðnu marki. Það sama á við um útsvarið. Þau eiga að byggja sína tekjustofna á þeim tækjum sem þau hafa. En jöfnunarsjóður hefur öðru hlutverki að gegna. Hann er félagslegt jöfnunarkerfi fyrir sveitarfélögin í landinu og hvert og eitt sveitarfélag getur ekki eignað sér hluti í tekjum sjóðsins. Það er bara ekki þannig sem það virkar. Vissulega var útsvarið — hluti af því fer aldrei inn til sveitarfélaganna, þetta var varðandi grunnskólaframlagið og varðandi fatlaða. (Forseti hringir.) En það breytir því ekki að það er ekki hægt að segja að ríkisvaldið sé að hlutast til um skattaákvarðanir sveitarfélaganna. (Forseti hringir.) Þeim er í sjálfsvald sett að gera það. En það breytir því ekki að ef þau ætla að fara í sjóðinn þá verða þau fullnýta útsvarið. Það er grundvallaratriði.