156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[16:13]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið en mér fannst ég samt ekki fá nógu gott svar við fyrirspurninni því að með þessu getur einmitt verið ýtt undir félagslegan ójöfnuð með þessum breytingum sem kunna að verða hjá sveitarfélögunum. Í stað þess að hafa lægra útsvar munu þau lækka fasteignagjöldin eða fasteignaskattana enn frekar en nú er og það getur leitt til félagslegs ójöfnuðar. Ég vildi fá viðbrögð við því, að skattalækkunin muni nýtast betur þeim sem eiga húsnæði heldur en hinum almenna launamanni.

Einnig langar mig að fá viðbrögð ráðherrans við öðru því að í ræðu hæstv. ráðherra varð honum tíðrætt um sanngirnissjónarmið. Nú þekkjum við að það á að koma til sérstakt höfuðborgar- eða höfuðstaðarálag, eða hvað það er kallað í frumvarpinu, til Reykjavíkur og Akureyrar. Nú þekkjum við að Reykjavík, höfuðborgin okkar, býr við það umfram önnur sveitarfélög að hér eru langflestar stjórnsýslubyggingar (Forseti hringir.) og gríðarlegir fasteignaskattar sem fylgja þeim. Er mikil sanngirni í því og hefur verið tekið nægilegt tillit til þess í þessu nýja frumvarpi, (Forseti hringir.) að Reykjavík, eitt sveitarfélaga, er með langflestar ríkisstofnanir og mestu fasteignaskatta af ríkisstofnunum?

(Forseti (BHar): Forseti minnir aftur á að ræðutíminn er ein mínúta.)