Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að óska hæstv. ráðherra til hamingju að vera kominn með þetta ágæta frumvarp hér fram. Það er þó ýmislegt í þessu sem mig langar aðeins að velta fyrir mér og er svolítið á svipuðum stað og hv. félagar mínir hér áðan varðandi það að nýta að fullu tekjustofna sveitarfélaga. Nú er það þannig að sá sem hér stendur hefur komið að rekstri sveitarfélaga og sveitarfélags og vandamálið hefur verið það að með hækkandi fasteignamati hefur fasteignagjald á landsbyggðinni hækkað. Þá hefur verið farin sú leið að lækka fasteignagjöld sem hefur orðið til þess að refsingin á sveitarfélögin hefur verið tvöföld; bæði hefur þá lækkað það sem við fáum út úr fasteignasköttunum og eins framlag frá jöfnunarsjóði.
Spurning mín er þessi: Er tekið á þessu með fasteignaskattana í þessu frumvarpi?