156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[16:18]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Eins og kom fram í framsögu minni þá er fasteignaframlagið fellt niður. Þá hverfur hvatinn þannig að þetta hefur ekkert áhrif á það. Eins og ég skil núverandi kerfi þá er þar hvati til skattahækkunar hvað varðar fasteignaskattana en núna er fasteignaframlagið fellt niður þannig að hvatinn er ekki til staðar. Þetta byggir á tekjumöguleikum á móti útgjaldaþörfinni. Núverandi kerfi byggist á því að ef það voru hærri fasteignaskattar þá fékkstu meira út úr fasteignaframlaginu. Það var einn af göllunum. Annar galli var sá að það var svokallaður pottur fyrir íbúafækkun. Eitt árið fékk eitt sveitarfélag allan pottinn, mig minnir að það hafi verið Skagabyggð, þau fengu 260 milljónir. En það var bara eitt sveitarfélag á landinu þar sem íbúum fækkaði.

Þessi einföldun er gríðarlega mikilvæg og tekur algerlega á þessari þróun sem er búin að eiga sér stað og það er ekki með neinum hætti litið til þess að það sé hvati til hækkunar á fasteignasköttum, ekki með nokkrum hætti.