156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[16:19]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið en það væri kannski ágætt að hæstv. ráðherra væri hérna í salnum þannig að hann hlustaði og skildi það sem ég var að spyrja um vegna þess að ég held að hann hafi ekki alveg áttað sig á spurningu minni hérna áðan. Hún er einfaldlega þessi: Í gamla kerfinu er tvöföld refsing fyrir sveitarfélögin. Ef fasteignagjöld hækka og fasteignamat hækkar og fasteignagjöldin þar af leiðandi þá hafa sveitarfélög verið að lækka þau til þess að koma til móts við íbúa sveitarfélaganna varðandi auknar álögur. Þá hafa þau lækkað fasteignagjöldin. Það hefur þýtt að framlög úr jöfnunarsjóði hafa lækkað á móti. Þetta er tvöföld skerðing á tekjum sveitarfélaganna.

Spurning mín er þessi: Er tekið á þessu í þessu frumvarpi eða er þetta óbreytt eins og þetta hefur verið? Vegna þess að þetta hefur verið mikið rætt á vettvangi sveitarfélaga, þessi tvöfalda skerðing, tvöfalda refsing sveitarfélaga. Það var spurningin.