156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[16:20]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Í þessu frumvarpi má raunverulega segja að sé hvati til skattalækkunar, svo það sé alveg skýrt. Það er ekki verið að horfa til þess núna sem lýtur að fasteignasköttunum. Það er fellt niður, sá hluti sem hv. þingmaður nefndi. Mig minnir að það sé t.d. hægt að sjá þetta í töflu, þar er alveg talið upp hver útgjaldaþörfin er, útgjaldabreyturnar eru taldar þar upp. Í núverandi kerfi var þetta með svipuðum hætti og hv. þingmaður lýsti, að fasteignaskatturinn hafði áfram áhrif á framlög úr sjóðnum. Það mun ekki vera þannig lengur, svo það liggi fyrir. Þannig að það er raunverulega verið að einfalda kerfið með þessum hætti og sjá til þess, má segja til þess að ítreka það, að það sé hvati til frekari skattalækkunar ef eitthvað er.