156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[16:21]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Hér eru til umfjöllunar breytingar á Jöfnunarsjóði sveitarfélaga sem hefur það hlutverk að jafna mismunandi útgjaldaþörf og skatttekjur sveitarfélaga með framlögum úr sjóðnum á grundvelli ákvæða laga, reglugerða og vinnureglna sem settar eru um starfsemi sjóðsins. Lengi hefur verið kallað eftir því að breytingar verði gerðar á jöfnunarsjóði þannig að hann þjóni betur tilgangi sínum og gagnsæi verði aukið. Núverandi reiknilíkön eru u.þ.b. 30 ára gömul og ljóst að miklar breytingar hafa orðið á þeim tíma, bæði á íbúasamsetningu og hlutverki sveitarfélaga. Sveitarfélögum á landinu hefur fækkað úr 204 árið 1990 í 62 í dag á sama tíma og íbúum landsins hefur fjölgað úr 254.000 í 390.000. Samandregið voru reglur og lagarammi um starfsemi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sett upp þegar umhverfi sveitarfélaga var allt annað en það er í dag og mikil þörf er því á uppfærslu.

Markmið frumvarpsins er að sjóðurinn fylgi þróun sveitarstjórnarstigsins og styðji við sveitarfélög sem hafa stórt þjónustusóknarsvæði og fjölbreytt byggðamynstur og hafa af þeim sökum miklar og flóknar útgjaldaþarfir. Markmiðið er einnig að dregið sé úr neikvæðum hvötum í regluverki sjóðsins sem hamli sameiningum sveitarfélaga og að regluverkið stuðli enn frekar að sjálfbærni sveitarfélaga og styðji áfram við veikari byggðir.

Með breytingunum á sjóðurinn að styðja betur við sveitarfélög sem talin eru sinna höfuðstaðarhlutverki og framlög vegna nemenda með íslensku sem annað tungumál að taka mið af þróun málaflokksins og sveitarfélög að njóta sama réttar til framlaga. Síðast en ekki síst er markmiðið að leiðarljós breytinganna verði einföldun regluverks og aukið gagnsæi. Þá er meginmarkmið frumvarpsins að gæta að grundvallarhlutverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem er að jafna stöðu sveitarfélaga með lægri tekjur og mismunandi útgjaldaþörf en sambærileg sveitarfélög þannig að allir íbúar landsins fái notið sams konar þjónustu frá sínu sveitarfélagi sama hvar þeir búa.

Í umsögnum sveitarfélaga má eðlilega sjá mörg viðhorf. Mörg þeirra fagna breytingunum en önnur gagnrýna ákveðna hluta þess. Sú breyting sem hefur hlotið hvað sterkustu viðbrögðin er sú breyting að ef sveitarfélög fullnýta ekki útsvarshlutfallið þá mun það skerða framlög úr jöfnunarsjóði sem nemur vannýttum útsvarstekjum. Þessi breyting er í samræmi við tillögur starfshóps um endurskoðun á jöfnunarsjóði sem þáverandi innviðaráðherra, hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson, skipaði í janúar 2023. Starfshópurinn byggði á vinnu verkefnisstjórnar sem ráðherra skipaði í apríl 2021 um endurskoðun á tekjustofnum sveitarfélaga sem skipaður var fulltrúum og starfsfólki innviðaráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þessar breytingar eru því ekki teknar úr lausu lofti heldur byggjast á mikilli og ítarlegri vinnu.

Samkvæmt lögum geta sveitarfélög innheimt á milli 12,44% og 14,97% af tekjum íbúa sinna í útsvar. Þær tekjur sveitarfélaganna eru veigamesti tekjustofn þeirra. Langflest sveitarfélög innheimta hámarksútsvar og einungis þrjú eru með það undir 14%. Þessa breytingu hefur hluti stjórnarandstöðuþingmanna kallað skattahækkun, sem verður að teljast í besta falli skapandi orðræða. Það liggur fyrir að engin krafa er til staðar á sveitarfélög sem telja sig geta veitt þjónustu án þess að innheimta hámarksútsvar að gera það. Með öðrum orðum þarf enginn að hækka útsvarið, skattana sem vísað hefur verið til í umræðunni. Það verður hins vegar ekki hægt að gera það áfram og ætlast til þess að aðrir, ríki og önnur sveitarfélög, greiði fyrir þá þjónustu sem skatttekjur eða útsvar íbúa duga ekki fyrir. Bara fjögur sveitarfélög sögðust vera á móti þessu; Seltjarnarnes, Garðabær, Hafnarfjörður og Kópavogur, í innsendum erindum í samráðsgátt. Sum sveitarfélög tóku sérstaklega undir tillöguna. Þetta er í raun ákveðið sanngirnismál. Ef sveitarfélög standa það vel að þau þurfi ekki að fullnýta tekjustofna sína er ekki forsvaranlegt að þau bæti það upp með framlagi frá íbúum annarra sveitarfélaga í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.

Virðulegi forseti. Ég hlakka til að hlusta á sjónarmið sem koma fram í 1. umræðu og taka þetta mál svo til umfjöllunar inni í hv. umhverfis- og samgöngunefnd.