156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[16:26]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka þingmanninum kærlega fyrir góða ræðu. Ég er með tvær spurningar sem ég hef hug á að inna þingmanninn eftir. Fyrst er það varðandi þau sveitarfélög sem eru í þeirri stöðu að greiða í rauninni meira til sjóðsins heldur en þau fá úr sjóðnum gagnvart þessum vangaveltum um hækkun á útsvarinu. Hitt er það hvort þingmaðurinn sé á því að það sé eðlilegt að horfa til sveitarfélaga sem hafa það hlutverk í sínum landshlutum að vera, ja, við skulum segja kannski leiðandi um þjónustu, við höfum stundum leyft okkur að kalla þetta safnsveitarfélög sem hafa klárlega hlutverk umfram önnur sveitarfélög í viðkomandi landshluta, hvort þau ættu ekki með réttu að skoðast í því ljósi gagnvart jöfnunarsjóðnum eins og verið er að gera með svokölluðu höfuðborgarálagi.