Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfsyni fyrir spurninguna og andsvarið. Ég náði nú ekki alveg hvort það fólst spurning í fyrri hlutanum varðandi viðhorf mitt gagnvart þeim sveitarfélögum sem eru þá að borga meira til sjóðsins. Ég er búin að vera alveg á fullu að setja mig inn í þetta flókna umhverfi sem jöfnunarsjóðurinn er þannig að ég þarf svona aðeins að skoða hvernig tekjustofninn reiknast svo ég skilji aðeins betur þann vinkil. En í fljótu bragði þá hugsa ég með mér: Hvað ef sveitarfélagið sem er um tíma að borga meira til sjóðsins en það er að fá úr sjóðnum, hvað ef aðstæður þess breytast? Þetta er lifandi umhverfi þannig að ég ímynda mér að það sveitarfélag gæti á einhverjum tímapunkti verið í þannig aðstöðu að vera ekki lengur þar en það vill væntanlega bara fá þá sömu réttindi og hin sveitarfélögin. Skilurðu hvað ég er að fara? Þetta er bara jöfnunartæki og aðstæður sveitarfélaga eru mismunandi á mismunandi tímum þannig að einhvern veginn í fljótu bragði get ég ekki séð að það sé endilega neikvætt þó að um tíma einhver borgi meira til sjóðsins heldur en hann fær úr honum því að það gæti svo breyst síðar þegar fram vindur.
Varðandi höfuðborgarálagið og safnsveitarfélögin þá bara hlakka ég til að kafa betur ofan í þetta með þér og öðrum nefndarmönnum í nefndinni, hv. umhverfis- og samgöngunefnd. En í þessu er hins vegar aukið framlag til fjölkjarnasveitarfélaga sem eru oft þessi sveitarfélög sem eru að veita meiri þjónustu gagnvart minni sveitarfélögunum, sem eru þá með þessum breytingum líka að fá meiri framlag þó að það heiti ekki höfuðborgarálag eða slíkt. En þetta verður bara áhugavert að skoða betur.
(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á að vísa til hvor annars.)