156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[16:31]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir seinna andsvarið. Það eru stigin ákveðin skref til að draga úr neikvæðum hvötum til sameiningar. Mér þætti spennandi að skoða hvort það sé jafnvel hægt að ganga lengra í meðferð nefndarinnar með að stuðla að frekari hvötum til sameiningar því að ég held að það hljóti að vera gott að fá fleiri sterk og öflug sveitarfélög frekar en þessi mörgu minni, þó að það sé kannski ekki endilega álit þeirra sem minni eru. En með því að búa til gott umhverfi og hvata þá gæti það breyst. Við skoðum það í nefndinni.