156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[16:32]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér eitt flóknasta stjórnsýslumál sem til er, sem er Jöfnunarsjóður sveitarfélaga. Það eru ekkert mjög margir held ég á Íslandi sem skilja nákvæmlega hvernig hann virkar en öll skiljum við til hvers hann er, að ég hélt, og hvert markmiðið með honum er og hver grunnurinn er í þessu máli. En ég er farinn að hafa verulegar áhyggjur af því hér, eftir að hafa hlustað á hæstv. innviðaráðherra og svo hv. stjórnarþingmann Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur, að þau skilji ekki alveg hvernig kerfið sem þau eru að leggja til hérna virki. Ég hef miklar áhyggjur af því, af því að eins og ég skil þennan jöfnunarsjóð og tilganginn með honum þá erum við að fara að reyna að lögfesta hér einhverja formúlu um hvernig sveitarfélögin í landinu borga eftir tekjum sínum inn í sjóðinn, eftir útsvarsstofni og öðru slíku, þannig að það er bara sama formúlan hvernig sveitarfélögin borga inn í sjóðinn og svo er þetta jafnað út með alls kyns breytum, svona stilliskrúfum eins og ég hef kosið að kalla það, hvernig þau fá svo aftur til baka út úr honum. Það eru mörg sveitarfélög sem eru að borga meira inn í sjóðinn heldur en þau fá út úr honum og þetta er bara eitthvert kerfi sem við erum búin að ná sátt um að hafa og ég tek bara heils hugar undir það að þessar stilliskrúfur eða þessar breytur getum við rætt og fundið einhverja sanngjarna niðurstöðu í því. Það er mikilvægt að gera það og ég fagna því að þetta frumvarp sé komið hér til þingsins til að við getum tekið á því. Þar getum við gert alls kyns hvata eins og til að hvetja til sameiningar sveitarfélaga og stuðla að hagkvæmari rekstri sveitarfélaganna.

Við getum tekist á við áskoranir sem sum sveitarfélögin búa við, eins og var rætt hér áðan um fjölkjarna sveitarfélög. Það er t.d. ein stilliskrúfan sem ég held að við þurfum að endurskoða, að þegar er búið að sameina þrjú sveitarfélög og komnir þrír byggðakjarnar er ekki hagkvæmt að sameina fleiri af því að það fer ekki nógu langt hérna í þessu. Það er ekki tekið tillit til þess eftir að það eru komnir þrír. Það eru svona kjarnasveitarfélög á hverju svæði, Akranes, Árborg, Sauðárkrókur, Akureyri vissulega, og að einhverju leyti hér Reykjavík og svona, og það er tekið tillit til þeirra, sem er bara eðlilegt og ég held að við hérna getum alveg tekið undir þá breytu, en það sem ég hef svo verulegar áhyggjur af í þessu máli er að fyrir utan þetta almenna hlutverk sjóðsins og þessar stilliskrúfur sem ég er tilbúinn að ræða og við eigum að stilla og finna eitthvað þá er komið með einhver hliðarspörk inn í þetta frumvarp sem ég tel að muni gera hæstv. ráðherra mun erfiðara að koma þessu máli hér í gegnum þingið, að búa til einhverja núningsfleti sem munu skemma fyrir málinu í heild sinni, sem er að mörgu leyti bara þarft og mikilvægt þó að það séu alltaf einhver sveitarfélög sem mun finnast þau vera hlunnfarin á meðan önnur eru að bíða eftir þessu af því að þetta kemur betur út fyrir sum og verr fyrir hin og annað slíkt.

Kannski áður en ég fer yfir þessi hliðarspörk og ræði þau aðeins þá held ég að það myndi auðvelda töluvert þessar breytingar ef við værum bara að tala um breyturnar, útgjaldabreyturnar og tekjubreyturnar, og hvernig við ætlum að stilla það í þessu frumvarpi ef það væru, eigum við að segja, meiri fjármunir í heildarpakkanum fyrir sveitarfélögin í gegnum mál sem ég veit að er til meðferðar hjá hæstv. innviðaráðherra um að afnema afslátt af orkumannvirkjum, þannig að orkusveitarfélögin fengju aukin fasteignagjöld og þar á meðal aukna tekjumöguleika og þyrftu því minna úr sjóðnum og því væri meira til skiptanna fyrir hin sveitarfélögin og þá yrðu breytingarnar á milli sveitarfélaganna minni og þá væri held ég auðveldara að ná sátt um það.

Á morgun held ég að séu liðin 12 ár síðan ég var kjörinn fyrst hingað inn og hef verið í hv. umhverfis- og samgöngunefnd mestallan tímann. Það er búið að reyna að gera margar breytingar á lögum um jöfnunarsjóðinn og það hefur aldrei tekist að gera neina grundvallarbreytingu af því að það eru alltaf nokkur sveitarfélög sem finnst vera brotið á sér á meðan önnur vilja fá til sín og svo næst ekki sátt þarna á milli og fæst engin þverpólitísk niðurstaða. Því er ég svo hissa á því að þegar búið er að vinna mjög góða vinnu í að finna einhverjar breytur og reyna að koma að í þessu þá eru sett þessi hliðarspörk hérna inn. Við þekkjum öll sjálfstjórnarrétt sveitarfélaganna og eins og ég byrjaði á að fara yfir þá er þetta gert þannig að sveitarfélögin eru látin borga inn og svo eiga þau rétt á einhverju út miðað við fjölda íbúa fimm ára og yngri og hve margir eru 6–15 ára og hve margir 67–80 ára o.s.frv. og líka hvað þarf að vera með mikinn snjómokstur og það eru svona breytur og það er það sem sveitarfélög eiga rétt á. Þegar þetta er reiknað, hverju þau eiga rétt á, alveg óháð því hvort þau séu að innheimta fullt útsvar eða ekki, þá er miðað við að þau séu að fullnýta fasteignagjöldin sín eða vera með vissar fasteignagjaldatekjur og séu með vissar útsvarstekjur í botni og þannig er fundið hverju þau eiga rétt á og þannig er bara kerfið og við ætlum að reyna að koma okkur saman um það. En af því að sum sveitarfélög forgangsraða öðruvísi en önnur, gengur betur með sinn rekstur en önnur og vilja því lækka álögur á sína íbúa, þá sér fólk einhverjum ofsjónum yfir því og þeim er bannað það. Þið fáið ekki það sem þið eigið rétt á úr jöfnunarsjóðnum miðað við þær breytur sem löggjafinn ákveður af því að þið ætlið ekki að rukka fullan skatt á ykkar borgara, af því að þið ætlið ekki að hafa nógu háar álögur á ykkur borgara, eins og það komi okkur eitthvað við hvernig sveitarfélögin ráða sínum málum sjálf. Þetta er ekkert nema skattahækkun eins og allt annað sem kemur frá þessari ríkisstjórn. Ef það er einhvers staðar smá matarhola er stokkið ofan í hana og tekið allt úr henni.

Það sem er eiginlega kaldhæðnislegast við þetta er að það er svo auðvelt fyrir þessi sveitarfélög, það eru dæmi um sveitarfélög, ef þau bara hafa fullt útsvar þá munar ráðstöfunarfé fyrir sveitarfélög upp á 600 milljónir. Þá bara ná þau í þessar 600 milljónir, annað væri óábyrgt af þeim, að hafa ekki útsvarið í botni, þá geta þau bara lækkað álögurnar einhvers staðar annars staðar. Útsvarið er jafnt yfir alla, það borga allir sömu útsvarsprósentu í hverju sveitarfélagi en það er ekkert víst að þar sem álögurnar verða lækkaðar á móti verði það jafnt á alla. Þá breytir það samkeppnisforskoti þess sveitarfélags gegn hinum, þannig að hér er verið að gera ranga hvata út af einhverjum algjörum misskilningi að ég held og af því hef ég áhyggjur. Það er bara mjög stórt hlutfall af íbúum þessa lands sem mun verða fyrir útsvarshækkun út af þessu. Mjög stórt hlutfall af íbúum landsins fær útsvarshækkun í boði ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur ef þetta fer óbreytt í gegn.

Svo er annað sem mig langar að gera að umtalsefni. Það er þetta höfuðstaðarálag. Ætlar hæstv. innviðaráðherra og stjórnarflokkarnir nú að fara að að bjarga fjárhag Reykjavíkurborgar, ekki einu sinni heldur tvisvar? Reykjavíkurborg fór í mál við jöfnunarsjóðinn, við ríkið, út af nemendum með annað tungumál. Til þess að reyna að ná sátt í þessu máli var samþykkt að setja þetta höfuðborgarálag inn. Það var samþykkt, að fá höfuðborgarálag inn til að reyna að mæta þessu, til að þetta dómsmál þyrfti ekki að fara. En svo fór nú dómsmálið alla leið og Reykjavíkurborg tapaði því. Samt er enn þá höfuðborgarálag en svo á líka að bæta skólaálaginu hérna inn. En hvaða skyldur fær Reykjavíkurborg í staðinn? Svo er talað um út af heimilislausum. Ég veit ekki betur en að nágrannasveitarfélögin borgi Reykjavíkurborg 50.000 kr. fyrir hverja nótt sem þeirra þegnar gista í gistiskýlinu eða öðru slíku. Hvaða skyldur og hvaða eftirlit verður með því þar? Er virkilega komið svo illa fyrir höfuðborginni að stærðarhagkvæmnin telur ekki neitt þar, það að hún fái fasteignagjöld frá nánast öllum stofnunum ríkisins, svimandi há fasteignagjöld hér á höfuðborgarsvæðinu, sérstaklega hérna í Reykjavík, að það dugi ekki fyrir þessu? Þurfa þau að fara hér og betla af öðrum sveitarfélögum landsins? Ég held að það ætti nú að hugsa meira um það, hæstv. innviðaráðherra, í staðinn fyrir að vera að seilast inn í sjálfstjórnarvald sveitarfélaganna.

Talandi um það að það séu aðeins tvö sveitarfélög af þeim fjölmörgu sem eru höfuðstaðir í sínum landshluta sem eiga að fá þetta aukaálag. Ég veit alveg að það fylgir því eitthvað að vera höfuðstaður en það fylgir líka hjá meginsveitarfélögum í sínum landshlutum eins og ég fór yfir hérna áðan. Það eru ekki bara Reykjavík og Akureyri. Ég myndi hreinlega frekar vilja breyta þeirri útgjaldabreytu í staðinn fyrir að hafa höfuðborgarálag og ef það á að fara að ræða höfuðborgarálag þá vildi ég fá að vita hvaða skyldur eru þarna í staðinn. Ég legg til, hæstv. forseti, að hv. umhverfis- og samgöngunefnd skoði það vel að fjalla mjög grundigt um þessar útgjaldabreytur og stilla þær þá aðeins betur þannig að það verði raunverulegur hvati fyrir þau sveitarfélög sem eru nú þegar komin með fleiri en þrjá kjarna að sameinast og verði raunverulegur hvati til sameininga og að það verði sem mest sátt um þetta og að orkusveitarfélögum verði gert kleift sem fyrst að fá réttar tekjur af orkumannvirkjunum, þá held ég að þessi breyting verði og við geymum þetta höfuðborgarálag og þetta með skyldu til hámarksútsvars, af því að enn og aftur, það mun ekkert ábyrgt sveitarfélag lækka útsvarið sitt, gefa eftir rétt sinn upp á hundruð milljóna sem væri hægt að nýta þá til að auka þjónustu eða lækka byrðar á annan hátt á þegna sína. Þetta er bara dulin skattahækkun sem er skírð einhverjum furðulegum nöfnum og maður þarf að fara að setja mannanafnanefnd yfir skattbreytingar þessarar ríkisstjórnar.