Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður fór hér mikinn og talaði um þekkingarleysi mitt og fleiri stjórnarþingmanna á þessu máli um jöfnunarsjóð. Við skulum bara fara yfir eitt atriði sem hann kom inn á, þ.e. varðandi það að sum sveitarfélög greiði meira af útsvari inn í sjóðinn en þau fá út úr honum. Varðandi þessa umræðu er mikilvægt að hafa í huga að hvert og eitt sveitarfélag getur ekki eignað sér hlut í þessum tekjum sjóðsins. Sjóðnum berast tekjur vegna yfirfærslu grunnskóla frá ríki til sveitarfélaga árið 1996 og vegna yfirfærslu málefna fatlaðs fólks frá ríki til sveitarfélaga árið 2011. Við yfirfærslu þessara verkefna frá ríki til sveitarfélaga myndaðist þörf á jöfnuði vegna reksturs þessara málaflokka, þ.e. fatlaðs fólks og grunnskóla. Þá var farin sú leið að 0,77% af útsvarinu færu vegna grunnskólans og 1,44% vegna fatlaðs fólks. Það var ákveðið að þessir peningar yrðu settir undir hatt útsvars, ekki tekjuskatts, til þess að tryggja þessa peninga til sveitarfélaganna, að þeir myndu renna beint í jöfnunarsjóð. Þessir fjármunir renna beint til jöfnunarsjóðs og hafa aldrei viðkomu í sveitarfélögunum. Aldrei. Það hefði alveg verið hægt að fara hina leiðina og hafa það þannig að þetta yrði hluti af skatttekjum, tekjuskattinum, sem fær þá í hítina til ríkissjóðs og svo myndi ríkið greiða í jöfnunarsjóð. Sú leið var ekki farin heldur var farin sú leið sem ég nefndi hér áðan, að taka þessar prósentur af útsvarinu sem færu beint í jöfnunarsjóð til þess að sveitarfélögin gætu sinnt þjónustu við fatlað fólk og grunnskólana. Það var leiðin. Og það að eigna sér þetta núna, eins og kom fram í blaðagrein bæjarstjóra Kópavogsbæjar í Morgunblaðinu um daginn, að Kópavogur greiði með útsvari sínu 1,5 milljarða kr. meira í jöfnunarsjóð en greitt er í framlögum úr sjóðnum til bæjarins, þetta er einfaldlega röng fullyrðing. (Forseti hringir.) Þetta er röng fullyrðing og ég vonast til þess að hv. þingmaður leiðrétti þetta. Þessir peningar af útsvarinu eiga að fara beint í jöfnunarsjóðinn. Það er grundvallaratriði í þessu máli.