156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[16:50]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég get nú glatt hæstv. ráðherra með því að ég var ekki að tala um eign eins eða neins. Ég var að tala um þær formúlur sem við erum að setja hér í lög um það hvernig tekjur eru reiknaðar inn í sjóðinn og hvernig er svo reiknað út hvaða rétt hvert og eitt sveitarfélag á til að fá út úr sjóðnum einmitt út af málefnum fatlaðra, einmitt út af yfirfærslu grunnskólans. Þá er það reiknað út hérna hvað sveitarfélögin eiga að fá út af þessum verkefnum. Það er bara formúlan sem við erum að búa til hérna. Miðað við þessa formúlu, að ef þú ert með svona mörg börn og þú ert með svona miklar tekjur þá vantar þetta upp á, gjörið þið svo vel. Þetta er það sem þú átt rétt á út úr þessum sjóði, sama hvernig hann er fjármagnaður og hvort það heitir A eða B. Það er það sem ég er að segja. Og svo kemur það einhvern tíma löngu seinna og tengist ekki þessum formúlum sem við erum að ákveða hér hvernig sveitarfélög fá greitt út úr sjóðnum, hvort þau eru að fullnýta þennan tekjustofn eða einhvern annan, það er bara eitthvað allt annað mál sem verið er að blanda inn í þetta. Jöfnunarsjóðurinn er til að jafna kostnaðinn við þá málaflokka sem er búið að setja undir hann. Það er reikniformúlan. Og svo ef þú fullnýtir ekki útsvarið þá ætlarðu að breyta reikniformúlunni. Ég skil það ekki.