156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[16:52]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Varðandi þetta með greiðslu af útsvari inn í sjóðinn og að sveitarfélögin séu fá minna úr sjóðnum en þau greiða inn í hann; ef sú leið hefði verið farin sem ég lýsti hérna áðan, sem er önnur leið en er farin í dag, þ.e. að þetta sé hluti af útsvarinu, ef sú leið hefði verið farin við yfirfærslu þessara verkefna, þ.e. málefni fatlaðra og grunnskólanna til sveitarfélaga, að tekjur sjóðsins væru hlutfall af tekjuskattsstofni en ekki útsvarsstofni, sem væri sama talan, þá ætti þessi umræða ekki við. Það var bara ákveðið að tryggja sveitarfélögum með jöfnunarsjóði þessar tekjur sem prósentu af útsvarinu. Það var gert. Það hefði verið hægt að hafa það þannig og segja: Heyrðu, við látum það vera þannig að þetta verði hluti af tekjuskattsstofninum og svo greiðir ríkið árlega. En þetta var gert til að tryggja þennan pening til jöfnunarsjóðs, 0,77% vegna grunnskólans og 1,44% vegna málefna fatlaðra, til að þetta færi beint í jöfnunarsjóð og þaðan til sveitarfélaganna. Þessar prósentur eru ekki eign sveitarfélaganna þannig að það er rangt að halda því fram að sveitarfélögin séu að greiða í sjóðinn hvað þennan hluta varðar. (Forseti hringir.)

Hitt er svo önnur umræða sem lýtur að því hvort sveitarfélögin fullnýta sitt útsvar eða ekki (Forseti hringir.) og ég vísa bara til fyrri umræðu hvað það varðar. En ég tel mjög mikilvægt að þetta komi fram varðandi útsvarið.