156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[16:53]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þó að þetta heiti jöfnunarsjóður og sé að einhverju leyti jöfnun þá er þetta líka bara viss leið til að borga sveitarfélögum fyrir að sinna málaflokkum sem voru færðir frá ríki til sveitarfélaga. Þetta er ekkert flóknara en það. Og hér erum við að fjalla um formúluna, hvernig á að borga sveitarfélögunum í landinu fyrir að sjá um þessa málaflokka. Svo ætla ég að segja: Heyrðu, þú þarft að sjá um málaflokkinn, ég ætla að borga þetta fyrir það. Hérna er formúlan, þú ert með svona marga svona krakka og svona marga hinsegin krakka og eitthvað svona og ég ætla að borga þér þetta fyrir það. En ef þú fullnýtir ekki útsvarið þá ætla ég ekkert að borga þér það sem þú átt skilið. En ef þú fullnýtir allt annað, ef þú gefur afslátt af einhverjum öðrum tekjum þínum þá skal ég borga fullt verð. Þetta er furðuleg pólitík.