Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir ágætisræðu. Mér finnst alveg sérstaklega gaman að taka til máls undir þessum lið vegna þess að við erum að tala um grjótharða pólitík hérna og ég fagna því alveg sérstaklega. Hér er mikið talað um misskilning manna á milli og að það sé einhvern veginn ekki verið að skilja ákvæðið í stjórnarskrá rétt, ef ég skildi ræðu hv. þingmanns. Samkvæmt því sem þar kom fram þarf að horfa til 78. gr. stjórnarskrárinnar þegar verið er að tryggja jafnan rétt sveitarfélaga til að ráða ráðum sínum sjálf með ákveðnum hætti. Ég verð að viðurkenna að ég áttaði mig ekki algerlega á því, hvorki í ræðu hv. þingmanns né í umsögnum þeirra sveitarfélaga sem skiluðu inn umsögnum sínum undir meðferð málsins og í aðdraganda þessa frumvarps í samráði. Í 78. gr. stjórnarskrárinnar stendur einfaldlega að sveitarfélögin skuli sjálf ráða málefnum sínum eftir því sem lög ákveða. Það er ágætlega gerð grein fyrir því í almennum athugasemdum með frumvarpinu að í þessu felst ekki á nokkurn einasta hátt einhvers konar skerðing á sjálfsákvörðunarrétti sveitarfélaga heldur er löggjafinn hér beinlínis að taka af skarið. Þannig að ég bara spyr: Getur hv. þingmaður útskýrt fyrir mér hvernig þetta kann að brjóta á einn eða annan hátt í bága við 78. gr. stjórnarskrár? Ég spyr síðan í öðru lagi, vegna þess ég fæ ekki skilið nákvæmlega hvernig þetta er vond pólitík eða skrýtin, svo ég vitni í orð hv. þingmanns: Hvers vegna þarf sveitarfélag sem stendur ágætlega fjárhagslega að fá framlag úr jöfnunarsjóði upp í það sem það leggur til, til jafns við það sem það leggur til, svo það komi út á sléttu, svo það leggi ekki meira inn í sjóðinn, ef það telur sig á annan hátt geta útheimt útsvar sem er ekki upp í topp? (Forseti hringir.) Hvers vegna þarf slíkt sveitarfélag að lækka útsvarið sitt?