Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur fyrir hennar spurningar og vangaveltur og tek undir með henni að það er einmitt gaman að ræða pólitík hér, efnisleg málefni, sem hefur ekkert allt of mikið verið gert af í þessari pontu undanfarin ár en mér finnst vera að færast til betri vegar. Það er þannig að það er ákveðið alveg skýrt með lögum visst svigrúm sem sveitarfélögin hafa, af því að stjórnvöld fara með skattana en sveitarfélögin hafa visst svigrúm inni í útsvarinu sem þau ráða sjálf. Það er hvati fyrir þau til að standa vel að sínum rekstri og lækka álögur á sína íbúa. Þá er það bara ein forgangsröðunin sem þau geta ráðið og er góður hvati til þess að fjármál sveitarfélagsins séu með ábyrgum hætti. Og þó að það sé ekki verið að skylda sveitarfélögin beint í þessu frumvarpi til að fullnýta útsvarið er sagt í hinu orðinu: Þið fáið það ekki greitt sem þið eigið rétt á fyrir að sinna grunnskólanum og málefnum fatlaðra nema fullnýta það. Þá er eiginlega búið að skylda þau til þess þó að það standi ekki beint í lögum. Það er enginn ábyrgur stjórnandi að fara að segja: Heyrðu, ég ætla ekki að gera það sem ég þarf að gera til þess að fá greitt fyrir þá þjónustu sem mínir þegnar eru að borga fyrir hér.