Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held ég átti mig kannski aðeins betur á því hvernig stjórnarandstaðan ætlar sér að hugsa þetta mál eða a.m.k. Sjálfstæðisflokkurinn. Hér er ég búin að heyra ítrekað orðasambandið „það sem þið eigið rétt á“. Hér talar hv. þingmaður um það að sveitarfélögin, sem eru bara vel stæð sum hver, eigi bara sjálfkrafa rétt á einhverjum fjármunum úr jöfnunarsjóði svo þau komi svona sæmilega út á sléttu fyrir það eitt að sinna lögbundinni þjónustu, lögbundinni þjónustu sem heitir þjónusta við fatlað fólk í landinu. Þjónusta við börn. Framkvæmdastjóri í Garðabæ hefur hagsmuni af því að barn á Vopnafirði fái þjónustu vegna fötlunar sinnar. Þetta er Jöfnunarsjóður sveitarfélaga vegna þess að það er ekki hægt að gera ráð fyrir því að það sé réttur sveitarfélags sem útheimtir ekki, leggur ekki á útsvar til samræmis við önnur sveitarfélög, að þau eigi bara rétt á því að koma út á sléttu úr sjóðnum. Þarna er fólk eitthvað alveg að misskilja það (Forseti hringir.) hvað Jöfnunarsjóður sveitarfélaga snýst um. Ég bara sé ekki hvernig fólk nær utan um þetta.