Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Nú jukust áhyggjur mínar enn þá meira af því hvernig stjórnarþingmenn nálgast þetta frumvarp. Enn þá meira. Hér hefur enginn talað um það að öll sveitarfélög eigi að koma út á sléttu úr þessum sjóðum, það hefur bara aldrei verið rætt. Það hefur bara ekki verið þannig. Það sem var verið að tala um er að reiknuð stærð sé stærri frá sumum sveitarfélögum inn í sjóðinn heldur en út úr honum. Það var bara til að benda á það að það hvort þau séu að fullnýta útsvarið eða eitthvað hefur ekkert að gera með reikniformúluna sem var ákveðið að nota þegar ríki og sveitarfélög sömdu um að sveitarfélögin myndu taka að sér rekstur grunnskóla í staðinn fyrir ríkið, að sveitarfélögin myndu taka að sér málefni fatlaðra í staðinn fyrir ríkið. Það var ákveðið að fara þessa leið til að greiða fyrir það og þess vegna megið þið ekki festast of mikið í orðinu jöfnunarsjóður. Sumt er jöfnunartæki, annað er að jafna greiðslur ríkisins fyrir þjónustuna til þeirra sveitarfélaga sem eru að veita þjónustuna. Þið verðið að skilja þetta áður en þið farið að keyra þetta mál hér í gegnum þingið.