156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[17:02]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni kærlega fyrir góða yfirferð á þessu mikilvæga frumvarpi. Það sem mig langar aðeins að eiga orðastað við hv. þingmann um er það sem hann kom inn á í sinni ræðu hér áðan og snýr að þessu svokallaða höfuðborgarálagi sem á að nema samkvæmt því sem stendur hér í þessu frumvarpi 2,5% af þeirri fjárhæð sem varið er til jöfnunarframlaga skv. 1. mgr. Þá skil ég það þannig, virðulegur forseti, ég held að það sé ekkert hægt að skilja það öðruvísi, að sveitarfélög landsins eru þá verða af tekjum sem nemur 2,5% sem fara til höfuðborgarsvæðisins og Akureyri í þessu höfuðborgarálagi.

Ég verð nú bara að segja að ég er ekkert sérstaklega hrifinn af þessu ákvæði. Ég hef efasemdir um það og hv. þingmaður fór ágætlega yfir það áðan. Mín spurning til hv. þingmanns er hvort hann sé ekki að skilja þetta með sama hætti og ég, þ.e. að þetta sé þá þannig að þetta sé skerðing upp á 2,5% af pottinum til höfuðborgarsvæðisins, Reykjavíkur og Akureyri. Stærsta byggðaaðgerð Íslandssögunnar er sú þegar tekin var ákvörðun um að byggja stjórnsýsluna upp hérna á höfuðborgarsvæðinu. Fasteignagjöld og gjöld, útsvarstekjur og annað sem höfuðborgin, og Reykjavík sérstaklega, er að fá út af þeirri aðgerð eru ævintýraleg samanborið við tekjur annarra sveitarfélaga. (Forseti hringir.) Er það ekki bara ágætt? Þarf eitthvað meira?