156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[17:04]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta góða andsvar og tek heils hugar undir með honum að það er svolítið óljóst hvernig þessi tala er fundin út. Af hverju er þessi prósenta? Og varðandi samninga eins og eru um málefni fatlaðra og grunnskólann sem við erum að ræða hér, þá eru alveg augljósar skyldur sem fylgja því að fá út úr jöfnunarsjóðnum og hvernig það er fundið út. En svo er allt í einu puttinn einhvern veginn settur upp í loftið og fjármunir teknir þá af heildarúthlutun sjóðsins til að setja til höfuðborgarinnar. Ég geri engar athugasemdir við það að Akureyri fái þetta sem meginkjarni á sínum stað eins og er í reikniformúlunum, bara að útfæra það betur þannig að það sé hægt að nálgast það. En höfuðborgin er með gríðarlegar tekjur, mun meiri tekjur heldur en þessi 2,5% eru að fara að gefa þeim, og samt þurfa þeir að koma hér að kroppa. Þarna er ekki talað um stærðarhagkvæmni eða hvort þau eigi rétt á því eða þá að mínusa tekjurnar, fasteignagjöldin og annað, á móti. Þannig að það er alveg ótrúlegt að stækka púllíuna hérna milli Hvítánna. Ég skil þetta ekkert öðruvísi en hv. þingmaður.