156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[17:06]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er ágætt að við erum með svona þokkalega svipaðan skilning á þessu máli. Ég var aðeins að reyna að finna það í þessu frumvarpi hvernig þessi upphæð, prósenta, 2,5%, er til komin, eins og hv. þingmaður kom inn á, hvaða útreikningar liggja þar á bak við. Af hverju eru þetta ekki 3% eða 1%? Og það að þessu sé skipt þannig að 1% skiptist jafnt á milli sveitarfélaganna og síðan 1,5% eftir íbúafjölda frá 1. janúar, sem þýðir það náttúrlega að langstærsti hlutinn af þessu framlagi er að fara beint til Reykjavíkur. Ég hef, eins og ég hef sagt hérna, efasemdir um að það sé skynsamleg nálgun, sérstaklega vegna veikrar stöðu margra byggðarlaga hringinn í kringum landið sem sárlega þurfa fjármagn og reiða sig algjörlega á fjármagn úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Að það sé skert til þess að koma til stuðnings við höfuðborgarsvæðið og Reykjavík er sérstakt.