156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[17:07]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eins og ég kom líka inn á hér í ræðu minni áðan þá virðist sem þetta höfuðstaðarálag hafi einhvern veginn komið inn út af deilum Reykjavíkurborgar við jöfnunarsjóðinn, sem Reykjavíkurborg tapaði svo en samt hangir höfuðborgarálagið inni. Ég tek undir með hv. þingmanni að Reykjavíkurborg fær mest af þessum 2,5% og það er formúla inni í frumvarpinu til þess að bæta Akureyri sem höfuðstað inn í þetta.

Það sem ég sakna líka er að svo kemur ofan á þetta það sem dómsmálið snerist um, það sem kom þessu inn, þ.e. kennsla fyrir annað tungumál. Það er svo líka bætt þannig að það er verið að bæta Reykjavík þetta tvisvar sinnum og þeir fá engar skyldur á móti. Ekki eru þeir skyldugir til að hafa Reykjavíkurflugvöll hérna þannig að það sé aðgengi að stjórnsýslunni eða eitthvað. Ekki eru þeir gerðir skyldugir til að hafa úrræði fyrir heimilislausa sem þeir eru að rukka hin sveitarfélögin fullt gjald fyrir núna og hæstv. ráðherra nefndi hér áðan í sinni ræðu. (Forseti hringir.) Samt eru þeir að rukka fyrir það og samt á að bæta þeim það upp hér. Þannig að maður er alveg hættur að skilja í þessu.