Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Frú forseti. Bara aðeins örstutt hérna. Nú liggur fyrir og kemur svo sem fram í málinu að það er talsvert af nýjum umsögnum en ég velti fyrir mér verklaginu því að látinn er fylgja málinu í samráðsgáttinni talsverður fjöldi, verulegur fjöldi umsagna frá því að málið kom hér fyrst inn haustið 2023. Að mínu mati er talsvert villandi fyrir þingmenn að vera með hvort tveggja í gangi því að þetta eru svo miklar breytingar sem hafa átt sér stað hér. Til dæmis bara í einu máli, í einu sveitarfélagi erum við að fara úr tæplega 61 millj. kr. skerðingu í líklega 5 millj. kr. viðbót. Þannig að ég bara velti fyrir mér, frú forseti, hvers vegna þessi úreltu gögn eru látin fylgja en ekki bara þau nýju.