Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Varðandi þetta mál sem hv. þingmaður minntist á þá var það vissulega flutt á löggjafarþinginu 2023, fór þá í umsagnarferli og þessar umsagnir voru birtar í samráðsgátt, ég hef nú ekki skoðað þetta sjálfur. Svo er frumvarpið sett í samráðsgátt aftur og þá kemur aftur nýtt umsagnarferli. Umsagnirnar frá 2023 voru settar inn til upplýsingar og gerð sérstök skýrsla um þetta eins og kom fram í ræðu minni. Núna er hin þinglega meðferð að hefjast hér á Alþingi Íslendinga og þá fer þetta aftur í umsagnarferli í þinginu. Þannig að þetta eru sjálfstæð ferli sem eru þá umsagnarferlið sem er í samráðsgáttinni og svo aftur í þinginu. Það hefur verið haft gríðarlega mikið samráð í þessu máli og búið að flytja þetta mál áður. Ég get ekki séð að þetta sé eitthvað til að rugla málið frekar og ég vona að hv. þingmaður skoði þær umsagnir sem berast til þingsins þegar núna er fullbúið frumvarp tilbúið til framlagningar og lýtur að þeim fjárveitingum sem fara til sveitarfélaganna miðað við líkan eins og það er í dag, miðað við það frumvarp sem hér er mælt fyrir.