Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég ætla aðeins að fá að ræða um þetta frumvarp sem hér liggur fyrir, frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Eins og ég kom inn á í andsvari við hæstv. ráðherra Eyjólf Ármannsson áðan fagna ég því að það er hér fram komið. Ég held að það sé mjög mikilvægt og í raun og veru þarft skref að stíga vegna þess að ég held að flest sveitarfélög landsins og sveitarstjórnarfulltrúar hafi verið komin á þá skoðun að það fyrirkomulag sem var í gildi, gamla jöfnunarsjóðskerfið, hafi verið úr sér gengið að mjög mörgu leyti og náð illa að uppfylla þarfir og breyttar kröfur og breytt þjónustustig sveitarfélaga. Það var alveg ljóst að það þyrfti að fara í breytingar á þessu ágæta kerfi okkar sem ég tel í grunninn að sé gott.
Auðvitað eru skiptar skoðanir um útfærslu í þessu eins og mörgu öðru. Hér er verið að skipta takmörkuðum gæðum, virðulegur forseti, og þá er alltaf umdeilt hvernig sú skipting eigi að fara fram. Í grunninn held ég að það sé hægt að segja að þó að það sé auðvitað ekki nákvæmlega þannig að þar sem — ef þú myndir tala við sveitarfélögin í landinu og spyrja þau um þeirra álit á þessu nýja frumvarpi þá held ég að skipti kannski ekki aðallega máli hvað stendur hér í frumvarpinu heldur sé það í raun og veru niðurstöðutaflan um hvað hvert sveitarfélag fær sem markar svolítið afstöðu sveitarfélaga. Við verðum bara að taka aðeins tillit til þess í okkar umræðu hér.
Hér hefur aðeins verið rætt um í raun og veru hlutverk og tilurð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Í mínum huga er hlutverk jöfnunarsjóðs tvíþætt í grunninn. Annars vegar er ríkið að koma með fjármagn til að borga sveitarfélögunum fyrir þau verkefni sem þau eru að sinna, svo sem eins og skóla og annað því um líkt, málefni fatlaðs fólks, snjómokstur, listinn er töluvert langur og við notum jöfnunarsjóð til að koma því fjármagni sem reksturinn á að kosta til sveitarfélaganna. Síðan er það hinn þátturinn og það er í raun og veru þessi jöfnunarhluti jöfnunarsjóðs. Það er sá hluti sem ég er svolítið fókuseraður á, sem er í raun og veru þessi byggðavinkill jöfnunarsjóðs. Það er verið að koma til móts á sanngjarnan hátt við sveitarfélög sem standa höllum fæti og þau sveitarfélög sem standa betur að vígi fá eðlilega minna út úr þeim hluta jöfnunarsjóðs. Það er jöfnunin. Í því felst jöfnun jöfnunarsjóðs. Síðan getur okkur greint á um það hvað við eigum að ganga langt í slíkri jöfnun en hlutverkið er algjörlega skýrt hvað varðar jöfnunina, að við erum og eigum að koma til móts við þau sveitarfélög sem eru í erfiðleikum, hvort sem þeir eru langvarandi eða tímabundnir, og það gerum við í gegnum þennan sjóð.
Hins vegar eru nokkur atriði sem mig langar aðeins að fara yfir í þessu sérstaka frumvarpi, bæði hlutir sem hér eru inni og eins kannski hlutir sem eru ekki inni og maður hefði viljað sjá að yrðu lagfærðir. Strax hérna þegar maður skoðar þetta frumvarp í 2. gr. sem kemur að tekjuhliðinni, þar segir að framlag úr ríkissjóði nemi 2,036% af innheimtum skatttekjum ríkissjóðs og tryggingagjöldum. Það sem ég hef verið að velta fyrir mér, og það er allt í lagi að það komi fram hér að sá sem hér stendur var í ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs í fjögur ár þannig að ég þekki nú aðeins inn á þennan málaflokk, er að vandamál sveitarfélaganna, og það er bara sama og vandamál allra sem eru í rekstri, er fyrirsjáanleiki. Við þurfum að hafa fyrirsjáanleika í okkar rekstri. Því betri fyrirsjáanleiki, því betri áætlanir, því betri rekstrarniðurstaða. Vandamálið við það að hengja þetta á sem hlutfall af innheimtum skatttekjum og tryggingagjöldum er það að sveitarfélögin hafa í raun og veru ekki hugmynd um það hvað þau eru að fara að fá frá jöfnunarsjóði fyrr en 31. desember ár hvert. Í niðursveiflu, virðulegur forseti, þegar harðnar á hjá ríkinu, þegar við lendum í áföllum, hvernig sem þau eru til komin, hvort sem þau voru út af Covid eða hverju sem er, þegar skatttekjur lækka, þá lækka framlög til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga eðli málsins samkvæmt. En vandamál sveitarfélaganna, virðulegur forseti, er hins vegar það að það kostar alveg jafn mikið að reka grunnskólann og reka málefni fatlaðs fólks og moka snjóinn eins og ef það væri góðæri. Við umræður í nefndinni þá held ég að væri mjög áhugavert að nefndin myndi aðeins fara inn á þessa hlið sjóðsins og hvort væri hægt að koma einhvers konar sveiflujöfnunartæki inn í jöfnunarsjóðinn til að milda þessar sveiflur á sveitarfélögin til að koma með meiri fyrirsjáanleika og milda þessar sveiflur. Ég veit að þetta er erfitt og þetta er flókið en vandamálið er það og staðreyndin er þessi að ef tekjur ríkisins dragast saman þá minnka tekjurnar til sveitarfélaganna en kostnaðurinn vegna lögbundinna verkefna sem ríkið hefur falið sveitarfélögunum er sá sami að lágmarki. Það er þetta sem ég held að væri mjög áhugavert að skoða og ég myndi kalla eftir í nefndinni.
Það kemur fram, virðulegur forseti, í 5. gr., varðandi sérstök framlög jöfnunarsjóðs, þar sem m.a. er verið að tala um sameiningarframlög og sameiningar sveitarfélaga — og hvað, eru ekki sveitarfélög landsins orðin 64 ef ég man töluna rétt? Það er ekki langt síðan þau voru 64 fleiri, um aldamótin, ef ég man þá tölu rétt, ég held að þetta komi fram í frumvarpinu. Okkur hefur orðið ágengt í þessu þrátt fyrir að hafa ekki með lögformlegum hætti þvingað sveitarfélögin til sameininga. Sveitarfélögin hafa eðli málsins samkvæmt, með flóknari og stærri verkefnum sem hafa verið flutt frá ríki til sveitarfélaganna, séð hag sinn í því að vera með stærri og öflugri einingar til þess að halda utan um sín verkefni. Í mörgum tilfellum hafa sveitarfélögin einfaldlega verið orðin of lítil til þess að geta sinnt þeim verkefnum sem þeim eru falin lögum samkvæmt. Ég fagna því og mín skoðun er sú að þetta sameiningarframlag sem sveitarfélögin hafa fengið fyrir að sameinast hafi verið gríðarlega jákvæður hvati og virkað mjög vel fyrir mjög mörg sveitarfélög. Ég bara fagna því að það er hér inni áfram og hef trú á því að það muni leiða til enn frekari sameininga á næstu árum og áratugum. Ég held að þróunin sé í þá átt, virðulegur forseti, að sveitarfélögin muni í fyllingu tímans sameinast. Það þarf að vera fjárhagslega jákvæður hvati fyrir sveitarfélögin að sameinast fyrir utan að sjálfsögðu bara þann slagkraft sem þau fá af því að vera saman í stærri einingum.
Síðan erum við komin hér að í raun og veru því máli sem mér finnst vera helsti löstur á þessu ágæta frumvarpi annars vegar, sem er þetta höfuðborgarframlag og ég er búinn að ræða það hér í andsvörum við hv. þm. Vilhjálm Árnason. Ég skil þetta ekki alveg. Ég sé ekki alveg þörfina fyrir það að taka 2,5% af jöfnunarframlagi, og 2,5%, virðulegur forseti, af jöfnunarframlaginu er bara töluvert mikil upphæð ef þetta er eins og ég er að skilja þetta. 2,5% er bara ansi mikið af peningum og það er alveg ljóst að það er ekki tekið úr loftinu. Þetta er tekið af hinum sveitarfélögum landsins. Það er verið að skerða framlög sveitarfélaga landsins um 2,5% með þessari aðgerð. Það er verið að skerða Eyjafjarðarsveit, það er verið að skerða Húnabyggð, Skagaströnd, Húnaþing vestra, Borgarbyggð. Ég gæti talið upp ansi mörg sveitarfélög sem eru að verða fyrir skerðingu vegna þess að við höfum tekið ákvörðun um það hér að setja 2,5% af jöfnunarframlaginu til höfuðborgarinnar, Reykjavíkur og Akureyrar. Eins og ég sagði áðan, langstærsta byggðaaðgerð Íslandssögunnar, var þegar við tókum ákvörðun um það að stjórnsýsla Íslands ætti að byggjast upp á höfuðborgarsvæðinu, í Reykjavík. Fasteignaskattar og útsvar þess fólks sem þar vinnur er gígantískt. Það eru gígantískar upphæðir sem Reykjavíkurborg er að fá út af þeirri ákvörðun.
Ég held, virðulegur forseti, að það hafi verið Vilhjálmur Árnason sem var að tala um það áðan: Hvaða skyldur fylgja þessu höfuðborgarálagi? Ég hef ekki séð þær. Eru þær einhverjar? Þegar fulltrúar Reykjavíkurborgar komu svo í fjölmiðla, í umræðunni um Reykjavíkurflugvöll þar sem landsbyggðin var að berjast fyrir því að halda sjúkrafluginu — og hæstv. ráðherra á þakkir skildar fyrir hans framgöngu í því ágæta máli, svo það komi nú fram hér — þegar fulltrúar Reykjavíkurborgar, sem eru að fara að fá 2,5% höfuðborgarálag, 2,5% fyrir að vera höfuðborg Íslands, sögðu að það þjónaði ekki hagsmunum íbúa Reykjavíkur að fella tré og hleypa sjúkraflugi aftur til Reykjavíkur, þá veltir maður fyrir sér: Hverjar eru skyldur þess að þessi 2,5% — eru þær engar? Þurfa þeir ekkert að gera?
Ég velti líka fyrir mér: Hvað með Ísafjörð og Egilsstaði? Af hverju fá þessir kjarnar ekki sömuleiðis einhvers konar höfuðstaðarálag? Þetta eru kjarnar á sínum svæðum; Egilsstaðir, Ísafjörður, Akureyri, Reykjavík. Eru þetta ekki fjórir punktarnir? Mér finnst þetta sérstakt, virðulegur forseti, og mér finnst einhvern veginn vanta svolítið rökin fyrir þessu. Ég veit að Reykjavíkurborg er að bera ákveðinn kostnað út af því að vera höfuðborg landsins. Það er óumdeilt. Ég er ekki að gera lítið úr því. Það er kostnaður Reykjavíkurborgar að vera höfuðborg en þeir fjármunir sem höfuðborgin Reykjavík fær út af því að ákvörðunin var tekin að byggja hér upp alla stjórnsýslu og alla innviði henni tengda eru það margfalt, margfalt meiri heldur en sá kostnaður að ég sé ekki tilganginn í því að þurfa að koma hér og taka fjármagn af hinum sveitarfélögum landsins til að afhenda Reykjavíkurborg.
Ég sé að tíminn flýgur og ég er að renna út á tíma hérna. Ég er ekki kominn nema bara brot inn í þetta frumvarp en stóra málið í þessu, og það er náttúrlega það sem þarf að ræða, hvort sem það er gert í þessu samhengi eða síðar, virðulegur forseti, er náttúrlega tekjuskipting ríkis og sveitarfélaga og hvort þetta tekjuhlutfall sem ég var að lesa hér upp áðan er yfir höfuð nóg til þess að sveitarfélögin í landinu geti uppfyllt þau lögbundnu hlutverk sem þeim hafa verið falin lögum samkvæmt. Það væri fróðlegt að fá t.d. uppreiknað hver kostnaður sveitarfélaganna vegna grunnskólanna er (Forseti hringir.) samanborið við þau framlög sem þau fá í gegnum jöfnunarsjóð en holt og bolt, virðulegur forseti, fagna ég þessu frumvarpi. (Forseti hringir.) Það er margt mjög gott í því en það er líka margt sem þarf að laga.