156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[17:27]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðilega ræðu um þetta mikilvæga mál og gott að heyra að hann fagni frumvarpinu og styðji það enda flutti fyrrverandi innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins þetta frumvarp á síðasta kjörtímabili, mælti fyrir því. Hann kom með áhugaverða hugmynd varðandi sveiflujöfnun vegna niðursveiflu í efnahagslífinu og líka, ég tek heils hugar undir það, jákvæða hvata til þess að sveitarfélög haldi áfram að sameinast, en það er gríðarlega mikilvægt að við fækkum þeim enn þá meira, úr 62. Þau voru 124 um aldamótin og voru 204 um 1996, minnir mig, a.m.k. hefur þeim fækkað niður í 62 frá aldamótum.

Það var eitt atriði sem hv. þingmaður kom inn á sem hann taldi helsta galla þessa frumvarps. Það var svokallað höfuðstaðarálag sem fjallað er um í 4. mgr. 6. gr. Ég tel að það sé vert að koma aðeins inn á ákveðin atriði hvað þetta varðar. Um árabil hefur verið fjallað um svokallað borgarvægi, að sveitarfélög með svokallað borgarvægi glími við sérstakar áskoranir í rekstri sínum sem lúta þá sérstaklega að þjónustu við heimilislausa og svo er ákveðið menningarlegt hlutverk. Þetta er samkvæmt tillögum starfshópsins frá 2023 og tillaga nefndarinnar gengur út á það að Reykjavíkurborg og Akureyrarbær fái framlög úr sjóðnum vegna sérstöðu sinnar hvað varðar kostnað er hlýst af margþættum kostnaði sem snertir félagsþjónustu og heimilisleysi og varðandi menningu líka. Ef við skoðum bara menningarhlutann, Hof t.d., þá kostar rekstur Hofs Akureyrarbæ 500 millj. kr. á ári. Svo getum við tekið dæmi líka um Reykjavíkurborg og kostnaður við rekstur gistiskýla sem íbúar nágrannasveitarfélaganna sækja var 520 millj. kr., að teknu tilliti til tekna árið 2024. (Forseti hringir.) Það sem er hér undir líka — ég verð að koma að því í seinna andsvari, en spurningin er þessi: Telur hv. þingmaður ekki réttlæti í því að jöfnunarsjóður greiði fyrir þetta hlutverk þessara höfuðstaða sem lýtur að fátæku og heimilislausu fólki og menningarlegu hlutverki?