Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir þetta andsvar. Að sjálfsögðu á að koma inn í þessa málaflokka varðandi menningu og ráðherra talaði hér sérstaklega um heimilislausa. Ég veit ekki betur en að íslenska ríkið, og við þekkjum það nú báðir, vorum í fjárlaganefnd Alþingis á síðasta kjörtímabili og við munum alveg hvaða upphæðir eru að fara t.d. í rekstur á þessum stofnunum frá ríkinu. Við eigum þá bara að koma inn í þær á þeim nótum. Ef við þurfum að reka hér Hörpu eða Hof, ef stjórnvöld og Akureyrarbær tóku ákvörðun um það saman að reka Hof og það kostar ákveðið, þá hefur væntanlega verið gerður um það samningur þeirra á milli eða þá milli Reykjavíkurborgar og ríkisins um Hörpu, ekki satt? Þá þarf bara að uppfylla þann samning. Ég held að ríkið sé að gera það. Ef það er ekki nægjanlegt þá þarf bara að endursemja. Það á ekki að taka það af sveitarfélögum landsins, virðulegur forseti. Það er það sem ég er að benda á. Það á ekki að taka það af Dalabyggð.
Ef það kostar að reka gistiskýli þá skilst mér að málunum sé nú þannig fyrir komið að nágrannasveitarfélögin greiða, held ég, 50.000 kr. fyrir nóttina fyrir hvern einstakling sem er á þeirra vegum. Ef það kostar meira og ef Reykjavíkurborg treystir sér ekki til að reka gistiskýlið, gott og vel, þá þarf bara að gera samning um það við ríkið. Það á ekki að vera tekið af Skagaströnd. Það er punkturinn, virðulegur forseti, sem ég er að reyna að koma hér inn á.