Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Varðandi höfuðstaðarálagið og líka að það sé verið að taka af öðrum sveitarfélögum þá tel ég að það sé ekki nálgun sem ætti við hér þar sem við horfum til hlutverks sjóðsins, sem er jöfnunarsjóður, félagslegs hlutverks jöfnunarsjóðs. Þessi tvö sveitarfélög gegna ákveðnu hlutverki í menningarlegu tilliti sem íbúar annarra sveitarfélaga nýta, t.d. eins og það að fara á tónleika í Hofi og líka það að heimilislausir sækja í fjöldann í Reykjavík og á Akureyri líka. Annað sem er líka vert að benda á er að framlag vegna höfuðstaðarálags, t.d. til Reykjavíkur, mun eingöngu duga fyrir hluta kostnaðar Reykjavíkurborgar við þessi fyrrnefndu verkefni sem önnur sambærileg sveitarfélög sinna ýmist ekki eða í miklu minna mæli. Annað atriði sem ég tel mikilvægt að komi fram er varðandi athugasemdir um að þessi sveitarfélög hafi breiðari tekjustofna en önnur sveitarfélög. Þar eru tvö atriði sem þarf að hafa í huga. Annars vegar þegar rýnt er í ársreikninga sveitarfélaganna fyrir árið 2023 var sérstök samtala skatttekna á hvern íbúa og framlag úr jöfnunarsjóði á hvern íbúa ívið lægra í Reykjavíkurborg og Akureyri en á landsvísu. Sveitarfélögum er raðað í röð frá því sveitarfélagi sem hefur hæstar skatttekjur og framlag úr jöfnunarsjóði á hvern íbúa til þess lægsta. Þar var Reykjavík í 6. neðsta sæti og Akureyri í 12. neðsta sæti þannig að það verður ekki séð að þessi sveitarfélög séu sérstaklega tekjuhá miðað við önnur sveitarfélög. Rétt er að hafa í huga að inni í þessum tölum eru einnig fasteignaskattar af opinberum byggingum. Skatttekjur á hvern íbúa tala sínu máli, alla vega árið 2023, Reykjavík var í 6. neðsta sæti og Akureyri í 12. neðsta sæti þannig að ég tel eðlilegt út frá bæði tekjunum og líka hlutverkinu að þessi sveitarfélög komi inn í jöfnunarsjóð hvað þetta varðar. Ef ég man rétt er framlagið til Reykjavíkurborgar (Forseti hringir.) 400 millj. kr. Ég tel að það að stilla sveitarfélögunum á móti hvert öðru sé ekki rétt nálgun. Það væri gott að fá að heyra betri rökstuðning fyrir því hjá hv. þingmanni.