156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[17:37]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir framsöguna og að vera duglegur að taka þátt í andsvörum sem hefur að mínu mati skýrt ýmislegt í þessu frumvarpi. Ég vil jafnframt þakka fyrir að þetta frumvarp sé komið fram. Það hefur verið beðið eftir því í svolítinn tíma og óneitanlega er þetta mikilvægt frumvarp og sennilega eitt af mikilvægustu frumvörpunum sem verða rædd á þessu þingi.

Mér er minnisstætt þegar ég var að byrja í stjórnmálum, hóf feril minn í sveitarstjórn á Akranesi, þegar var verið að kynna fyrir okkur nýliðunum um hvað við værum að fjalla og um hvað málin snerust almennt á sveitarstjórnarstiginu. Þá var jöfnunarsjóðurinn mjög framarlega í þeim útskýringum sem var farið í en okkur var jafnframt í rauninni tilkynnt samhliða því að það væru ekki gerðar kröfur til þess að sveitarstjórnarfulltrúar gætu sett sig inn í alla rangala jöfnunarsjóðsins á einu kjörtímabili, menn skyldu gefa sér a.m.k. rúmlega kjörtímabil í að skilja gangverk jöfnunarsjóðsins. Ég ætla nú að viðurkenna að ég gerði alvöruatlögu að því að setja mig inn í þessi mál og gekk það reyndar ágætlega. Af því að hér nefndi hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson að hann hefði setið í ráðgjafarnefnd varðandi jöfnunarsjóðinn þá vil ég nefna það að ég var líka þar og hlutverk sjóðsins er gríðarlega mikilvægt.

Það sem var kannski erfiðast að eiga við var að mínu mati að það var aldrei neinn fyrirsjáanleiki í því hvaða niðurstöður maður fengi úr jöfnunarsjóðnum. Við gerðum alltaf eins góð plön og áætlanir og mögulegt var og horfðum til allra mögulegra þátta en iðulega varð einhver breyting á því. Það sem kannski gleymist stundum í umræðunni um jöfnunarsjóðinn er að það er rekstur allra sveitarfélaga á Íslandi sem er undir þannig að breyturnar eru gríðarlega margar þannig. Það getur skipt máli hvernig gengur t.d. bara í nágrannasveitarfélögum þínum fyrir það hverjar þínar niðurstöður úr reikningshaldi jöfnunarsjóðsins verða. Ég ætla bara að viðurkenna það að þegar maður gerði fjárhagsáætlanir á sveitarfélagastiginu var yfirleitt reiknað með því að framlögin úr jöfnunarsjóðnum yrðu með ákveðnum varúðarsjónarmiðum og þess vegna gerði maður yfirleitt ráð fyrir, ef nokkur kostur var, eins litlu framlagi þaðan og kostur væri án þess að tapa einhverri skynsemi í áætlanagerðinni.

Ég er á því að það sé skynsamlegt að breyta reiknireglunum fyrir jöfnunarsjóðinn og auðvitað er ákveðið tækifæri núna fyrir umhverfis- og samgöngunefnd til að skoða það gjörla hvort það væri ástæða til að gera kannski jafnvel einhverjar frekari breytingar á regluverkinu. Ég vil samt benda á að auðvitað er erfitt að vera með allar stilliskrúfurnar undir hverju sinni og við sjáum í rauninni alveg á þeim umsögnum sem veittar hafa verið um þetta frumvarp að menn eru bara að kanna sína stöðu og skoða hvaða áhrif verða af jöfnunarsjóðsfrumvarpinu fyrir þau sveitarfélög sem þú ert í forsvari fyrir eða á því svæði sem þú ert mögulega þingmaður fyrir.

Ég hjó eftir því í framsöguræðu hæstv. ráðherra að hann nefndi að sveitarfélögum muni halda áfram að fækka. Ég held að það sé rétt mat en hann kannski svarar mér með það þá hvort hann telji t.d. að það frumvarp sem hér er undir sé líklegt til að stuðla að þeirri þróun eða hvort hann sjái þetta fyrir sér af einhverjum öðrum orsökum.

Við höfum rætt töluvert hér um höfuðborgarálag eða álag fyrir Akureyrarsvæðið og svo höfuðborgina. Ég minnist þess þegar við tókum umræður hér um höfuðborgarfrumvarpið að það voru viðraðar áhyggjur varðandi jöfnunarsjóðinn, þetta myndi hafa áhrif á jöfnunarsjóðinn. Ég held að þess sjáist alveg skýr merki í dag að þingmenn, ég ætla kannski ekki að segja hnýta í en hafa áhyggjur af því að mögulega sé verið að taka fullstóran skerf úr jöfnunarsjóðnum gagnvart þá öðrum sveitarfélögum og ég geri nú ráð fyrir því að við í nefndinni munum auðvitað skoða það. Ég held að ráðherra hafi nokkuð til síns máls með það að við eigum t.d. að gera menningunni hátt undir höfði en ég er líka sammála hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni um að það er hægt að gera það með öðrum hætti heldur en að fara með það í gegnum jöfnunarsjóðinn. En við sjáum hvað verður úr því.

Mér hefur verið tíðrætt um, bæði í þessari umræðu og líka í umræðunni um höfuðborgarálagið eða framlögin á sínum tíma, að það væri niðurstaðan fyrir þessi svokölluðu safnsveitarfélög. Nú veit ég að ráðherrann kannast við það orð, er búinn að læra það, og þá langar mig að nefna auðvitað Ísafjörð á Vestfjörðum. Við erum að tala um Akranes, við erum að tala um Selfoss eða Árborg og við erum að tala um Akureyri, jafnvel Sauðárkrók og Egilsstaði. Ég þekki ágætlega úr sveitarstjórnarmálunum hvaða hlutverk t.d. sveitarfélag eins og Akranes hefur á sínu landsvæði. Af því að ég er nú í þeirri aðstöðu að ég er að reka fyrirtæki, ég er að reka apótek í Snæfellsbæ, þá auðvitað áttar maður sig á því að akkúrat í sveitarfélagi eins og Snæfellsbæ, sem býr kannski ekki við bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hér á Íslandi, er það fólk sem þarf heilsu sinnar vegna að taka ákvörðun um að flytja sig um set ekkert endilega að flytja sig á höfuðborgarsvæðið, það flytur sig yfirleitt þá í höfuðstað þess landsvæðis sem býr það á. Ég hef séð ófáa Ólsarana flytja t.d. á Akranes vegna heilsu sinnar. Það er auðvitað fólk sem er með ríkari þjónustuþörf heldur en aðrir og það eru auðvitað aukin útgjöld fyrir safnsveitarfélögin að taka við nákvæmlega þessum hópi sem þarfnast verulegrar þjónustu.

Ég ætla líka að taka dæmi af því að börn með fjölþættan vanda voru m.a. hópur sem við urðum áskynja að flutti þangað sem úrræðin voru, t.d. á Akranes. Þetta er auðvitað gríðarlega kostnaðarsamur málaflokkur og þetta hefur stór áhrif á fjárhag þeirra sveitarfélaga sem taka á móti þessum einstaklingnum þótt auðvitað verið sé að gera ráð fyrir að það fylgi því ákveðnar tekjur.

Varðandi frumvarpið þá ætla ég kannski ekki að fara af einhverri dýpt ofan í einstaka liði frumvarpsins en mér finnst auðvitað mikilvægt að við ræðum t.d. 5. gr., sérstöku framlögin, með leyfi forseta, þar sem:

„Ráðherra úthlutar sérstökum framlögum af tekjum sjóðsins skv. a- og b-lið 2. gr., að fengnum tillögum ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, sbr. 19. gr. Sérstökum framlögum skal úthlutað sem hér segir:

a. Til að greiða fyrir sameiningu sveitarfélaga …“

Mér finnst þetta mikilvægur punktur og við þurfum að horfa á þennan punkt út frá því að þetta verði virkilega til þess að stuðla að sameiningu sveitarfélaga. Ég held að við getum flestöll verið sammála um að það er of mikið af litlum eða fámennum sveitarfélögum á Íslandi, sveitarfélögum sem hafa þá gríðarlegar áskoranir í því að halda úti einfaldlega þeirri þjónustu sem þarf að vera til staðar. Þá vil ég líka horfa til þess í öðru lagi að féð sé notað til að greiða úr sérstökum fjárhagserfiðleikum sveitarfélaga með styrkjum eða láni á grundvelli sveitarstjórnarlaga.

Hér er líka minnst á stofnkostnað við vatnsveitur á lögbýlum. Það er kannski ekki stórt mál en hefur auðvitað merkingu í hinum dreifðari byggðum og einnig varðandi skólaaksturinn og akstursþjónustu fyrir fatlað fólk. Þetta eru allt saman hlutir sem skipta máli og jafnvel verulegu máli. Sjóðnum er ætlað að taka tillit til tekna sveitarfélaga og útgjalda og það er í rauninni á grundvelli þeirrar röðunar sem útgjöld eða tekjur sveitarfélaga eru reiknaðar. Ég minni aftur á það sem kom m.a. fram í máli hv. þm. Stefáns Vagns Stefánssonar að við erum með öll sveitarfélögin undir þannig að það er ekki nóg fyrir þig verandi að reka sveitarfélag að gera það með ágætisniðurstöðu ef öðrum sveitarfélögum gengur illa. Það er í sjálfu sér hagur að öllum sveitarfélögum gangi vel því að þá er alla vega minna um stórar vendingar í jöfnunarsjóðsútdeilingunni.

Varðandi regluverkið sem slíkt þá held ég að það væri kostur ef það væri hægt að einfalda regluverkið enn frekar og við næðum að gera þetta þannig að sem flestir skilji og það verði kannski fleiri en einhverjir tveir eða þrír inni í jöfnunarsjóði sem kunna reglurnar. Ég vil brýna okkur þingmenn líka til þess að búa til enn frekari hvata en hér eru fyrir sveitarfélög til að sameinast.

Að þessu sögðu vil ég bara ítreka þakkir mínar til ráðherra fyrir að koma fram með þetta mál og ég veit að við í nefndinni munum leggjast yfir þetta og gera eins vel og nokkur kostur er að gera á þessu bragarbót þar sem þess þarf og hlakka til að glíma við þetta frumvarp.