Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fína ræðu um þetta mál og gaman að heyra hvernig hans aðkoma að málinu er líka sem gamall sveitarstjórnarmaður og líka fróðlegt að heyra að þetta sé mjög flókið mál, sem það hefur vissulega verið í núverandi kerfi. Helsta markmið þessa frumvarps hér er að einfalda líkanið, gera það gagnsætt. Nýja líkanið á að leysa af hólmi eiginlega þrjú líkön, tekjujöfnunar-, útgjaldajöfnunar- og fasteignaskattsframlag jöfnunarsjóðs. Núna kemur eitt almennt jöfnunarframlag og það er komið inn á í fyrsta lagi tekjur sjóðsins í 2. gr. Í 5. gr. er fjallað um sérstök framlög sem hv. þingmaður fór vel yfir. Svo er líka, eins og ég benti á í ræðu minni, farið yfir útgjaldabreyturnar. Þar er fjallað um það einfaldlega á hvaða aldursbili íbúarnir eru, það skiptir gríðarlega miklu máli, 5 ára og yngri, 6–15 ára o.s.frv., snjómokstur og fleiri atriði sem lúta að útgjöldum sveitarfélagsins. Svo eru það útgjaldastuðlarnir, hvernig voru þeir ákvarðaðir? Þar er fyrst og fremst stuðst við ársreikninga sveitarfélaganna. Úr þeirri sundurliðun kom skýrt í ljós að það voru menntamálin og félagsþjónustan sem voru stærstu útgjaldaliðir sveitarfélaganna. Það endurspeglast í útgjaldabreytunum. Ég held að hér sé verið að horfa heildstætt á stöðuna, þetta nýja líkan tekur heildstætt mið af stöðu sveitarfélaganna. Það eru einstakir þættir sem ég taldi upp hér áðan og eru þarna á bls. 10 í frumvarpinu. Svo er reiknuð út fjárþörfin þannig að ég tel að þessi einföldun sé mjög góð og ætti að vera gagnsæ. Ég á erfitt með að sjá hvernig er hægt að ganga lengra hvað það varðar.
Hv. þingmaður minntist á safnsveitarfélögin. (Forseti hringir.) Ég get tekið dæmi, að höfuðstaðarálagið er eiginlega — Reykjavíkurborg og Akureyrarbær eru hálfgerð safnsveitarfélög þegar kemur að menningu og varðandi heimilislausa. En það væri gott að fá að heyra aðeins álit hv. þingmanns á því hvernig hann gæti mögulega séð þetta einfaldara. (Forseti hringir.) Ég get ekki alveg séð það. Ég tek heils hugar undir orð hans varðandi hvata til sameiningar en ég kem að því í seinna andsvari mínu.