156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[17:54]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég ætla að þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Nú er það þannig að ég er ekki með skýr svör handa ráðherranum um það hvernig hann gæti einfaldað þetta enn þá frekar en ég er nokkuð viss um það að t.d. ef við horfum bara á það sveiflujöfnunarhlutverk sem jöfnunarsjóðurinn hefur gagnvart ríkinu, þá gæti það t.d. einfaldað líf alla vega þeirra sveitarfélaga sem njóta greiðslna úr sjóðnum að það væri meiri fyrirsjáanleiki í því hvaða tekjur væru mögulega koma frá jöfnunarsjóðnum. Það er svona mitt innlegg.