156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[17:55]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég tel að þetta frumvarp sé ekki mjög pólitískt. Það er búið að vera gríðarlega mikið samráð, búinn að vera starfshópur, búið að leggja þetta fram áður á þingi, farið í samráð í samráðsgátt og á þingi og ég vil lýsa því hér yfir að ég tel að Alþingi Íslendinga væri að bregðast sveitarfélögum í landinu ef við samþykkjum þetta frumvarp ekki sem lög frá Alþingi í vor. Það er mín sannfæring. Ég tel að það sé gríðarlega mikilvægt að við höfum lög um jöfnunarsjóð sem eru í takt við tímann, í takt við þarfir sveitarfélaganna og þær skyldur sem eru á þeim núna og útgjaldaþörf þeirra.

Varðandi sameiningar þá lít ég á þetta frumvarp sem eitt af þremur frumvörpum, þetta frumvarp til laga um jöfnunarsjóð sem ég mælti hér fyrir í dag, í haust kemur frumvarp um breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem lýtur að raforkusveitarfélögum og svo mun koma frumvarp til laga um breytingar á sveitarstjórnarlögum, þar verður ákvarðað um fjölkjarnasveitarfélög. Ég held að það verði að horfa á þetta heildstætt, allar þessar lagabreytingar. En ég held að eins og þetta mál núna er lagt upp með höfuðstaðarálaginu, með því að fullnýta útsvarið og með því sem varðar börn með íslensku sem annað tungumál, sem er atriði sem er til hliðar við líkanið, þá sé verið að koma til móts við sveitarfélögin hvað varðar útgjaldaþörf. Við verðum að horfa á öll sveitarfélögin í landinu og ég get ekki séð annað en að við þurfum að gera það líka hvað varðar höfuðborgarsvæðið. Ég held að þróunin — ég vil ekki hafa ákvæði um að það eigi að vera lágmark en það verður að knýja á um sameiningar. Ég veit að hv. þingmaður kemur frá einu landminnsta sveitarfélagi landsins og hann þekkir vel þá umræðu, sem er mikilvæg, sem lýtur að því að sveitarfélög sameinist en það þarf að vera í höndum sveitarstjórnarfólks sjálfs og íbúanna. Það er þjónustan við íbúana sem skiptir máli. (Forseti hringir.) Það væri gott að heyra álit þingmannsins á því hvort þetta frumvarp sé ekki að tryggja þjónustu við íbúa sveitarfélaganna. Út á það gengur þetta allan tímann. Fækkunin skiptir þar öllu máli líka.