Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Ég ætla nú að hughreysta ráðherrann, maður kastar nú ekki inn handklæðinu strax varðandi þingið. Ég hef fulla trú á því að nefndin muni vinna vel úr þessu máli og ætla bara að hughreysta ráðherrann um að hann geti mögulega komið þessu í gegn enda hefur umræðan hér, að mínu mati, alla vega ekki verið mjög pólitísk. Það hefur verið tekist á um eitt eða tvö pólitísk atriði sem varða kannski auðvitað ákveðin grunnprinsipp í þessu máli. En ég held að gagnvart breytingum á frumvarpinu þá sé alveg örugglega rými til að gera betur í þinglegri meðferð. Ég er viss um að við eigum eftir að fá góðar athugasemdir frá sveitarfélögum landsins. En auðvitað skiptir gríðarlega miklu máli fyrir hvert og eitt sveitarfélag að við náum góðri niðurstöðu í þingsal og við náum að sníða af þá vankanta sem mögulega eru á þessu frumvarpi. Ég get ekki bent á neina sérstaka akkúrat í augnablikinu en ég vil samt segja að auðvitað er mikið undir hjá sveitarfélögum. Við höfum séð breytingar bara á milli frumvarpa sem gjörbreyta fjárhagsstöðu sveitarfélaga og það er kannski ekkert endilega skýrt í hverju það felst fyrir aðra en akkúrat þessa aðila sem stýra viðkomandi sveitarfélagi, í hverju þessar breytingar eru fólgnar. Það að upphæðir sem hlaupa á hundruðum milljóna breytist á milli frumvarpa kallar auðvitað á skýringar og auðvitað lítur hver sínum augum á silfrið, ef má orða það kannski með þeim hætti.