Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Herra forseti. Ég vil byrja á að taka undir orð hv. þm. Ólafs Adolfssonar þegar hann hvatti ráðherra til að kasta ekki inn handklæðinu strax því að mér þykir nú umræðan sem ég hef verið að hlýða á hér í dag mjög málefnaleg og gefa talsvert góð fyrirheit um jákvæðni og vilja til góðrar samvinnu þannig að ég, fyrir hönd hæstv. ráðherra, kvíði því ekki neitt að nefndin muni ekki sinna verkum sínum af kostgæfni.
Aðeins langar mig, herra forseti, að nefna að ég kom hér fyrr í dag undir liðnum um fundarstjórn forseta og var með ábendingar um framsetningu á fylgiskjölum, þ.e. eldri umsögnum sem hæstv. ráðherra kom svo og svaraði fyrir, gerði ágætlega. Ég vil þó ítreka þá skoðun mína að mér þykir sérstakt að þegar þú ferð inn á vef Alþingis og inn í dagskrána, velur þér málið, ferð inn í málið, ferð inn í lið sem heitir umsagnir, þá opnast það fyrst á eldri umsagnirnar. Það var það, hæstv. ráðherra og herra forseti, sem ég var að vísa til þegar ég var að gera þessa athugasemd, ekki það að mér þætti óeðlilegt að þau gögn lægju fyrir til upplýsinga eins og hæstv. ráðherra sagði í svari sínu. Ég tek undir með hæstv. ráðherra um að auðvitað eiga öll gögn að fylgja málinu og það er vel.
Nú er það svo að sveitarfélög hafa mjög mismunandi útgjaldaþarfir og mismunandi möguleika til skatttekna þar sem aðstæður sveitarfélaga eru mjög ólíkar, til að mynda hvað varðar landstærð, fjölda þéttbýliskjarna, fasteignamat, tekjugrundvelli og fleira mætti telja. Það er mikilvægt að horfa til brothættra byggða og íbúaþróunar í víðari skilningi en gert er í fyrirliggjandi tilhögun, þ.e. ef menn ætla að verja byggðir á Íslandi og sporna við þeirri þróun sem hefur átt sér stað undanfarin ár í samþjöppun á suðvesturhornið. Það má í því tilliti nefna að skoðað verði betur hvort það ætti að setja stuðul á vegalengdir á milli þéttbýliskjarna innan sveitarfélaga. Það er alls ólíku saman að jafna, sveitarfélögum með þéttbýliskjarna stutt frá aðalþjónustukjarnanum þar sem hægt er að nýta alla lögbundna grunnþjónustu saman, svo sem skóla og íþróttamannvirki, eða þegar vegalengdin er orðin slík að það kallar á tvöfalda og jafnvel þrefalda þjónustu af sama toga ef t.d. er bara verið að tala um hámarkstíma í skólabíl og annað þess háttar. Til að taka eitthvert dæmi þá er nærtækt fyrir þann sem hér stendur að taka dæmi af tveimur byggðum í sama kjördæmi, Norðausturkjördæmi, Dalvíkurbyggð og Norðurþingi til að mynda. Í báðum sveitarfélögum eru þrír þéttbýliskjarnar. Annað hefur alla sína þéttbýliskjarna innan 15 km vegalengdar frá miðju þjónustusvæðis og hægt væri að reka þar eina grunnþjónustu ef horft er til vegalengdarinnar innan sveitarfélagsins. Hitt sveitarfélagið, Norðurþing, er með 130 km akstur á milli sinna þriggja þéttbýliskjarna og þar af leiðandi þarf að reka fleiri skóla, leikskóla og íþróttamannvirki til að þjónusta íbúa. Þessi þáttur getur einnig verið mjög hamlandi þegar verið er að skoða hagræðingar við sameiningu sveitarfélaga. Það liggur í hlutarins eðli að þegar fjarlægðirnar milli þéttbýliskjarna í sama sveitarfélagi eru orðnar talsvert á annað hundrað km þá þurfi eðlilega að taka tillit til þess.
Í viðauka með þessu máli er fjallað um útgjaldabreytur og vogir þeirra fyrir jöfnun vegna mismunandi útgjaldaþarfa. Snjómokstur vegur þar 4% í útgjaldabreytu en í skýringum kemur fram að þar er eingöngu notaður samanlagður kílómetrafjöldi þeirra vega í þéttbýli þar sem sveitarfélagið er veghaldari. Óeðlilegt er að ekki sé tekið tillit til snjómoksturs á vegum með helmingaskipti sveitarfélaga og Vegagerðar en víðfeðm sveitarfélög með dreifða byggð bera mikinn kostnað af snjómokstri í dreifbýli. Í þessu samhengi, herra forseti, get ég tekið sem dæmi í umsögn frá 5. mars síðastliðnum frá Þingeyjarsveit. Þar segir, með leyfi forseta:
„Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar ítrekar fyrri athugasemdir við snjómoksturstuðul í jöfnunarlíkani sjóðsins. Samkvæmt fyrirliggjandi drögum er gert ráð fyrir að stuðull vegna snjómoksturs byggi á kílómetrum innan þéttbýlis þar sem sveitarfélag er vegahaldari. Ekki er gert ráð fyrir víðfeðmum sveitarfélögum með stóran hluta vegakerfis í helmingamokstri á móts við Vegagerðina. […] Rétt er að taka fram að um 60% helmingamoksturs á Norðursvæði Vegagerðarinnar er í Þingeyjarsveit.“
Nágrannasveitarfélagið Norðurþing kemur þar skammt á eftir.
„Hlutverk Jöfnunarsjóðs er að gera ráð fyrir mismunandi gerð sveitarfélaga m.a. hvað varðar landfræðilega stærð þeirra og því mikilvægt að úthlutunarlíkan sjóðsins komi á móts við flóknar útgjaldaþarfi í víðfeðmum sveitarfélögum.
F.h. Þingeyjarsveitar.
Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir sveitarstjóri.“
Herra forseti. Það sem verið er að benda á í þessari umsögn og það sem ég hef áður vikið að hér er varðar þessi sveitarfélög sem eru mjög landstór og eru þar af leiðandi með mikið af sveitum, mikið af svokölluðum helmingaskiptavegum — þau eru að benda meira og minna að því er ég fæ séð í innsendum umsögnum á þetta sama atriði. Þannig segir í umsögn sveitarfélagsins Norðurþings, með leyfi forseta:
„Norðurþing er eitt þeirra sveitarfélaga sem lækkar verulega í framlögum eða tæplega 111 millj. kr. á ári. Engu að síður fagnar sveitarstjórn framlögðu frumvarpi og telur jákvætt að verið sé að endurskoða regluverk jöfnunarsjóðs og stuðla þannig að meiri fyrirsjáanleika í rekstri sveitarfélaga. Sveitarstjórn telur að frumvarpið sé gagnsætt og betri jöfnun á mismunandi útgjaldaþörfum og skatttekjum sveitarfélaga, enda aðstæður sveitarfélaga mjög ólíkar, t.d. hvað varðar landstærð, fjölda þéttbýliskjarna, fasteignamat og tekjugrundvelli.“
Þarna er enn verið að víkja að þessu sama sem er full ástæða til að taka til skoðunar, ekki síst í ljósi þess að þær reglur er lúta að þessu svokallaða helmingaskiptakerfi milli sveitarfélaga og Vegagerðarinnar í mokstri byggjast samkvæmt mínum heimildum á u.þ.b. 30 ára gömlum reglum. Ég hvet hæstv. ráðherra, og hv. nefnd þá í framhaldi, til að skoða þessar reglur sem Vegagerðinni er gert að vinna eftir til að það megi mögulega finna leiðir og koma til móts við þessi landstóru sveitarfélög sem eru með verulegan kostnað af þessari helmingaskiptareglu varðandi snjómokstur og það sem ég vék að áðan einnig er varðar vegalengdir hvað varðar skóla, hámarkstíma í skólabíl á dag og þess háttar. Ég hvet ráðherra og nefndina til þess að skoða það betur, rýna þessa uppbyggilegu og vel fram settu gagnrýni, bæði frá Þingeyjarsveit og Norðurþingi. Svo tel ég við hæfi, herra forseti, að grípa hér líka aðeins niður í þann tón er birtist í umsögn Aðalsteins Jóhannesar Halldórssonar fyrir hönd Tjörneshrepps þar sem hann víkur að þessu, eins og hann orðar það, með leyfi forseta:
„Afar umdeilanlegt er að veita höfuðstaðaálag eins og nú skal gera. Þrátt fyrir að einhver kostnaður falli á höfuðstaði í krafti stærðar þeirra þá kemur á móti að opinber störf sem nær alltaf eru í eða yfir meðaltekjum landsmanna eru í mun meira og jafnvel óeðlilega miklu mæli á höfuðstöðum sem skilar sér svo í útsvarsgreiðslum. Ekki er mikið um slík störf í fámennari samfélögum og heldur fækkar þeim ef eitthvað er. Því mótmælir Tjörneshreppur því harðlega að stór hluti heildartekna sjóðsins sé eyrnamerktur höfuðstaðaálagi. Engin vafi er að álagið er að miklu leyti sett fram til þess að auka vinsældir þessara nýju úthlutunarreglna meðal þessara fjölmennu og öflugu sveitarfélaga landsins.
Spurning er hvort að nýtt jafn verði að finna á sjóðinn ef þessar nýju úrhlutunarreglur verða að veruleika þar sem vandséð er að hlutverk hans sé að jafna stöðu sveitarfélaga landsins, hlutverk hans er að fækka sveitarfélögum landsins.“
Ég hyggst ekki lengja í umræðunni, herra forseti, með því að lesa hana líka en bendi á afar greinargóða umsögn frá Grýtubakkahreppi þar sem farið er vel yfir og ítarlega og vel rökstudd umsögn. Ég vil þó segja, herra forseti, að taki hv. þingmenn í umhverfis- og samgöngunefnd tillit til þeirra athugasemda sem ég hef hér farið yfir og eru að skila sér frá annars vegar mjög litlum sveitarfélögum og hins vegar gríðarlega landmiklum sveitarfélögum sem eru ekki endilega fjölmenn en mjög landmikil, samanber Norðurþing og Þingeyjarsveit — taki hv. þingmenn tillit til þessara ábendinga og athugasemda þá spái ég, eins og ég vék að í upphafi máls míns, mjög vel fyrir málinu.
Ég vil að lokum, herra forseti, fá að hæla hæstv. ráðherra fyrir að hafa verið hér í dag. Það hefur ekki alltaf verið þannig í vetur að hæstv. ráðherrar hafi séð ástæðu til að vera með okkur þegar verið er að ræða málin en svo hefur verið í dag og það er vel. Það er til bóta, það eflir og dýpkar umræðuna og öll skoðanaskipti og tel ég því ástæðu sérstaklega til að hæla hæstv. ráðherra fyrir það.
Ég læt þetta duga að sinni, herra forseti, með þeim hvatningarorðum til hæstv. ráðherra og hv. þingmanna nefndarinnar að þeir skoði þessar ábendingar vel er varða skólaaksturinn, snjómoksturinn, helmingaskiptaregluna, 30 ára gamlar reglur Vegagerðarinnar sem þarf að vinna eftir sem þarf þá væntanlega að endurskoða í nefndinni. Ég hvet einfaldlega til þess að þetta verði skoðað vandlega og þá spái ég vel fyrir þessu máli.