156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[18:12]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna og heyrði þau atriði sem hann nefndi þarna sérstaklega. Eins og ég kom inn á í andsvari hér fyrr í dag við hæstv. ráðherra þá er það auðvitað þannig að það hefur verið rifist um jöfnunarsjóðinn og úthlutunina eiginlega frá því að hann varð til og margoft gerð tilraun til að koma með eitthvert frumvarp eða setja í samráðsgáttina einhvers konar frumvarp. Það eru alltaf þessir þættir og það sem hv. þingmaður nefndi hérna, skólaaksturinn, snjómoksturinn og allir þessir liðir sem ég hef litið á sem vonda plástra í rauninni inn í jöfnunarsjóð. Þannig að ég stóð í þeirri meiningu að með þessari vinnu hjá starfshópnum og með því frumvarpi sem hér liggur fyrir væri verið að reyna að taka þessa þætti svolítið inn í módelið. En það er þáttur sem ég get engan veginn sætt mig við í þessu frumvarpi og það eru þessi hliðaráhrif að sveitarfélög sem ekki fullnýta útsvarsheimildir sínar, eins og það er orðað í frumvarpinu, sem er einhvers konar lagatæknileg orðræða á því bara að taka ekki eins mikið og mögulega er hægt af sínum íbúum í formi skatta, þau eigi ekki rétt á framlögum úr jöfnunarsjóði. Nú er það þannig að það er verið að taka tillit til þessara þátta í útreiknimódelinu þannig að mig langar að spyrja hv. þingmann hver afstaða hans er til þessa þáttar. Telur hv. þingmaður að það sé eðlilegt að umfram það sem sett er inn í reikniregluna, þar sem þó er gert ráð fyrir að útsvarsheimildirnar séu fullnýttar, sé þar að auki komið þannig fram í þessu frumvarpi að þau sveitarfélög sem af einhverjum ástæðum hefur tekist að vera með lægri skattbyrði á sína íbúa eigi engan rétt á framlögum úr jöfnunarsjóði?